Advertisement
Syngjum saman í Hannesarholti laugardaginn 12.apríl með Völu og Óskari Loga.Óskar Logi er leiðtogi rokksveitarinnar The Vintage Caravan, sem hann stofnaði 11 ára gamall en hann er gítarleikari, söngvari, texta- og lagahöfundur. Valdís Eiríksdóttir, Vala, er fjölmiðla- og tónlistarkona sem hefur verið að gefa út vögguvísnaplötur fyrir börn.. og fullorðna auðvitað líka, talsetja barnaefni og útvarpast.
Um svipað leyti í fyrra tóku þau samsönginn að sér og komust svo að því nokkrum dögum seinna að laumufarþegi hafi verið með. Ári seinna hafa þau hann aftur með sér, utan móðurkviðs og hvetja aðra til að hafa börnin með sömuleiðis. Lagalistinn kemur til með að henta börnum jafn sem fullorðnum.
Textar á tjaldi og allir syngja með. Ókeypis inn.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Grundarstígur 10, 101 Reykjavík, Iceland, Grundarstígur 10, 101 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland