Advertisement
Í október (17. & 18. okt) býð ég þér að skapa stórt og fallegt vegghengi sem getur verið glæsileg gjöf eða prýtt þitt eigið heimili, vinnustað eða sumarbústað.Öll velkomin, bæði þau sem þekkja macramé og þau sem eru að stíga sín fyrstu skref. Kennsla fyrir byrjendur er innifalin.
Hver þátttakandi hnýtir sitt eigið vegghengi, sitt eigið sköpunarverk á ca 60 cm viðarstöng, nokkrir litir í boði. Heilandi samverustund þar sem máttur handavinnunnar og sköpunarflæðið fær að njóta sín undir handleiðslu Heru. Byrjendur fá grunnkennslu og allur efniskostnaður er innifalinn
Námskeiðið er samtals 8 tíma og við hittums kl. 11-15 á laugardeginum & kl. 11-15 á sunnudeginum. Kaffi, te og léttar veitingar í boði. Námskeiðið er haldið á vinnustofu Flóðs & fjöru á Faxatorgi, Faxafeni 10, 2. hæð.
Verðið er 31.900 kr.
Möguleiki á að skipta greiðslum í tvennt sé þess óskað. Hafið samband á netfangið [email protected]. Vakin er athygli á að nýta endurgreiðslur stéttafélaga.
Sköpun eykur vellíðan, að sjá verk verða til í þínum eigin höndum er valdeflandi og ánægjulegt. Að leggja af stað með hugmynd og ásetning en leyfa flæði hugans, hjartans og handanna að skapa verkið og treysta því að útkoman verði sú sem hún á að vera. Þetta er frelsandi gjörningur og útkoman er þín.
Advertisement
Event venue
Faxatorg - Faxafen 10 2. hæð, 108 Reykjavík, Iceland, Faxafen 10, 108 Reykjavíkurborg, Ísland, Kopavogur, Iceland
Tickets