Advertisement
Á tónlistarhátíðinni Myrkum Músíkdögum er ný tónlist í brennidepli. Sinfóníuhljómsveit Íslands frumflytur tvö tónverk eftir þá Kjartan Sveinsson og Hauk Tómasson. Þá eiga Bára Gísladóttir, Þuríður Jónsdóttir og Clara Iannotta einnig verk á efnisskránni. Kjartan er ótrúlega fjölhæfur tónlistarmaður og tónskáld. Þekktur sem einn af forsprökkum hljómsveitarinnar Sigur Rósar en einnig fyrir tónsmíðar sem fluttar hafa verið víða um heim. Haukur Tómasson er á meðal okkar fremstu tónskálda og hefur hljómsveitin flutt og hljóðritað fjölda verka hans. Ferill Báru Gísladóttur er á hraðri uppleið og á þessum tónleikum verður verk hennar, sea sons seasons, flutt í fyrsta sinn á Íslandi. Þar veltir tónskáldið fyrir sér hafinu og þeim fjölbreyttu verum sem þar búa, raunverulegum sem óraunverulegum. Á tónleikunum leikur hin heimsþekkta Carolin Widmann nýjan fiðlukonsert eftir Clöru Iannotta. Þessi konsert komst nýlega í menningarpressuna þegar hljómsveitin sem pantaði verkið í upphafi neitaði að flytja það. Konsertinn er skrifaður fyrir Widmann og kannar litamöguleika fiðlunnar og hljómsveitarinnar til hins ítrasta. Á tónleikunum hljómar einnig verk Þuríðar Jónsdóttur frá árinu 2014, Miss Reykjavík Rita.Efnisskrá
Þuríður Jónsdóttir Miss Reykjavik Rita
Clara Iannotta sand like gold-leaf in smithereens - frumfl. á Íslandi
Kjartan Sveinsson Nýtt verk – frumflutningur
Haukur Tómasson Sixty Silver Domes – frumflutningur
Bára Gísladóttir sea sons seasons – frumfl. á Íslandi
Hljómsveitarstjóri
Bjarni Frímann Bjarnason
Einleikari
Carolin Widmann
//
The Dark Music Days music festival spotlights new music. The Iceland Symphony Orchestra will premiere compositions by Kjartan Sveinsson and Haukur Tómasson. Kjartan is an incredibly versatile musician and composer. He is known as one of the frontmen of the band Sigur Rós, but also for compositions that have been performed around the world. Haukur Tómasson is among Iceland's leading composers, and the orchestra has performed and recorded a number of his works. Bára Gísladóttir's career is on a meteoric rise, and this concert will see her work, sea sons seasons, performed for the first time in Iceland. In it, the composer reflects on the ocean and the diverse creatures that live there, both real and unreal. The world-renowned Carolin Widmann will play a new violin concerto by Clara Iannotta at the concert. This concerto recently made headlines in the cultural press when the orchestra that originally commissioned the piece refused to perform it. The concerto was written for Widmann and explores the possibilities of the violin and orchestra to the fullest. The concert will also feature Þuríður Jónsdóttir's work from 2014, Miss Reykjavík Rita.
Program
Þuríður Jónsdóttir Miss Reykjavík Rita
Clara Iannotta sand like gold-leaf in smithereens – Iceland Premiere
Kjartan Sveinsson New Work – World Premiere
Haukur Tómasson Sixty Silver Domes – World Premiere
Bára Gísladóttir sea sons seasons – Iceland Premiere
Conductor
Bjarni Frímann Bjarnason
Soloist
Carolin Widmann
Advertisement
Event venue
Eldborg, Harpa, Austurbakka 2, Austurbakki 2,Reykjavík, Iceland, Reykjav
Tickets