#StayHappening
Sat, 06 Feb, 2027 at 08:00 pm UTC+00:00

Rumours 50 ára

  • Háskólabíó · Reykjavík
D\u00e6gurflugan Publisher / Host Dægurflugan
Share
Rumours 50 \u00e1ra Miðasala hefst 22.sept kl 10!
Skráðu þig á póstlista Dægurflugunnar og tryggðu þér bestu sætin í forsölu.
👉 https://tinyurl.com/Daegurflugan
Hljómplatan Rumours með Fleetwood Mac kom út í febrúar árið 1977 og fagnar nú glæstum 50 ára tímamótum. Platan vermdi efsta sæti bandaríska Billboard-listans í hvorki meira né minna en 31 viku og var valin plata ársins á Grammy-verðlaununum. Með yfir 40 milljónir seldra eintaka er hún ein allra söluhæsta breiðskífa sögunnar og geymir ódauðleg lög eins og „Dreams“, „Go Your Own Way“, „The Chain“, „Don’t Stop“ og „Songbird“ – auk hins magnþrungna „Silver Springs“, sem rataði upphaflega á B-hlið einnar af smáskífunum en er í dag órjúfanlegur hluti plötunnar.
Fáar eldri plötur standa jafnfætis Rumours í dag því platan hefur náð einstakri tengingu við nýjar kynslóðir hlustenda; lög hennar telja milljarða spilana á streymisveitum og hún skaust aftur inn á topp 10 á vinsældalistum vestanhafs eftir að hafa slegið í gegn á TikTok. Í mikilli endurkomu vínylsins er Rumours enn í dag ár eftir ár meðal allra mest seldu LP-platna í heiminum, enda tímalaust meistaraverk sem hljómar jafn ferskt og áhrifamikið eins og fyrir hálfri öld.
Á tónleikunum verður meistaraverkið Rumours flutt í heild sinni ásamt úrvali vinsælustu laga Fleetwood Mac. Má þar nefna „Little Lies“, „Black Magic Woman“, „Landslide“, „Seven Wonders“, „Gypsy“, „Big Love“ og „Rhiannon“.
Um sönginn sjá STEFANÍA SVAVARS, MAGNI OG MARGRÉT EIR ásamt RAGNHEIÐI GRÖNDAL sem verður sérstakur gestur að þessu sinni.
Hljómsveitina skipa Sigfús Óttarsson (trommur) og Kristján Grétarsson (gítar), Kjartan Valdemarsson (hljómborð) og Eiður Arnarsson (bassi).
Hljómsveitinni bætist einnig liðsauki en það er enginn annar en gítarleikarinn Guðmundur Pétursson.

Event venue

Háskólabíó, Háskólabíó, Brynjólfsgata, 107 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you

Keep the plans coming

More events in Reykjavík

Prómeþeifur

Thu, 11 Feb at 07:30 pm Eldborg, Harpa, Austurbakka 2

Pínulitli tónsprotinn

Sat, 20 Feb at 02:00 pm Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre

Reykjavík is happening.

See everything else that’s on — concerts, markets, comedy and more.