#StayHappening
Wed, 28 Oct, 2026 at 12:15 pm UTC+00:00

Raddir rafmagna: Birgir + Hrönn

  • Salurinn Tónlistarhús · Kopavogur
\u00d3perudagar Publisher / Host Óperudagar
Share
Raddir rafmagna: Birgir + Hr\u00f6nn
Advertisement
Klassískar söngraddir umbreyta þeim rýmum sem þær hljóma í. Þær geta verið stórar, smáar, mjúkar og kraftmiklar, fínlegar, fallegar, viðkvæmar – jafnvel svakalegar eða yfirþyrmandi. Þótt þær séu órafmagnaðar ferðast þær um rýmin eins og rafmagn, snerta við áheyrendum og hlaða þá nýrri orku.
Á þessum hádegistónleikum stinga tenórsöngvarinn Birgir Stefánsson og píanóleikarinn Hrönn Þráinsdóttir sér í samband við þema Óperudaga í ár, Raddir rafmagna rými og flytja fjölbreytta dagskrá. Gestir fá tækifæri til að aftengjast amstri dagsins, tengjast lifandi tónlist og ganga út fullhlaðnir að tónleikunum loknum.
Birgir lauk nýlega meistaranámi við Tónlistarháskólann í Malmö og hefur starfað við óperuna þar í borg undanfarin misseri. Síðar í vetur ferðast hann víða um Danmörku í hlutverki Leanders í hinni vinsælu óperu Maskerade eftir Carl Nielsen og kemur meðal annars fram í Konunglega leikhúsinu í Kaupmannahöfn.
Hrönn er einn reyndasti píanóleikari landsins og hefur komið fram með flestum klassískum söngvurum þjóðarinnar við fjölbreytt tilefni hér heima og erlendis. Birgir og Hrönn taka vel á móti gestum í Salnum í Kópavogi þar sem rödd og píanó mætast og úr verður rafmögnuð stemning. Tónleikarnir eru samstarfsverkefni Óperudaga og Kópavogsbæjar.
Aðgangur er ókeypis og öllum opinn
Advertisement

Event venue

Salurinn Tónlistarhús, Hamraborg 6, 200 Kópavogsbær, Ísland, Kopavogur, Iceland

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Discover more events by tag

Ask AI if this event suits you

Keep the plans coming

More events in Kopavogur

Kopavogur is happening.

See everything else that’s on — concerts, markets, comedy and more.