#StayHappening
Sat Sep 26 2026 at 08:00 pm to 10:00 pm UTC+00:00

Mánadans á fullu tungli í hrúti

  • Yogavin · Kopavogur
Share
M\u00e1nadans \u00e1 fullu tungli \u00ed hr\u00fati
Advertisement
Laugardaginn 26. september, kl. 20–22 fer Mánadans aftur af stað eftir sumarfrí þar sem við munum dansa eina öldu innblásna af 5 ryþma dansi Gabrielle Roth. Kvöldið fellur auk þess á fullt tungl í Hrútsmerkinu svo við getum stillt okkur inn á það líka ef við viljum.
Þegar við dönsum saman verður til samhljómur þar sem hægist á hugsanaflæði og hjörtun fá að leiða. Við gleymum okkur og endurtengjum bæði við okkur sjálf og hvert annað.
Við fáum útrás, gleðjumst, tengjumst, tjáum okkur og tilbiðjum lífið án orða. Það er svo gott og frelsandi.
Við dönsum eftir nokkurs konar öldu sem byrjar í rólegum takti þar sem unnið verður með jarðtengingu, eigið flæði og það sem líkaminn þarf þá stundina.
Því næst tekur við ákveðnari taktur þar sem við tengjum við innri eldinn, mörkin okkar og viljann. Þar á eftir gefst tækifæri fyrir góðri útrás, hvíld frá huganum og sleppa takinu eins í vatnflaumi.
Eftir útrásina verður farið inn í léttleika loftsins og notið uppskerunnar á útrásinni. Að lokum hægjum við svo á dansinum í nánd við okkur sjálf í algjörri núvitund á hreyfingu, finnum hvernig líkaminn hreyfist að sjálfu sér og við hverju hefur dansinn hreyft í okkur.

Við endum svo kvöldið með góðri slökun og tónheilun.
Engin fyrri reynsla af dansi nauðsynleg, við dönsum ekki eftir neinum ákveðnum sporum og það þarf ekki einu sinni að dansa vel.
Bergþóra Einarsdóttir er mikill tónlistar- og dansunnandi sem hefur stundað 5 rythma dans og jóga frá árinu 2008.
Hún er spænskufræðingur, jóga -og sérkennari að mennt, með bakgrunn, dansi, ljóðum og tónlist en starfar að öllu jöfnu sem sérkennari í grunnskóla.
Verðskali: 2500-4500

Húsið opnar kl 19:30 en við dönsum frá 20-22.
Verðbil: 2500-4500
PS. Ég mæli með að mæta tímanlega, mæta í þægilegum fötum og með vatnsbrúsa.
Advertisement

Event venue

Yogavin, Grensásvegur 16, 108 Reykjavíkurborg, Ísland, Kopavogur, Iceland

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Discover more events by tag

Ask AI if this event suits you

Keep the plans coming

More events in Kopavogur

Kopavogur is happening.

See everything else that’s on — concerts, markets, comedy and more.