Advertisement
Táfýlutextíll er smiðja þar sem við könnum einfaldar aðferðir til að umbreyta gömlum sokkum í nýjan textíl. Taktu með þér slitna sokka og lærðu hvernig má klippa þá í hringi, búa til keðjur og byggja sveigjanleg, leikandi textílform úr efnum sem þú átt nú þegar.Smiðjan er opin öllum og engin reynsla af textílvinnu er nauðsynleg. Það eina sem þú þarft að taka með eru sokkar. Þetta er afslöppuð og skapandi samvera sem leggur áherslu á endurnýtingu, tilraunir og að uppgötva nýja möguleika í hversdagslegum efnum.
Emma Shannon er skosk textíllistakona og hönnuður búsett í Reykjavík. Verk hennar kanna mörk klæðanlegrar tækni og hefðbundins handverks. Með því að sameina verklega sköpun og nýja tækni sérhæfir hún sig í að skapa aðgengileg, þverfagleg rými sem hvetja til tilraunastarfs og framtíðarmiðaðra lausna fyrir sjálfbærni og skapandi samvinnu. Sem hluti af Endurtakk og samfélaginu á bakvið reddingarkaffi hefur áhersla hennar verið á skapandi endurnýtingu, viðgerðir og endurhugsun á staðbundnum textíl og fatnaði.
Frekari upplýsingar og skráning hér: https://borgarbokasafn.is/vidburdir/skapandi-taekni/make-thek-tafylutextill-med-emma-shannon
//
Táfýlutextíll is a hands-on workshop where we’ll explore simple techniques for transforming old socks into entirely new textiles. Bring your own socks and learn how to cut them into rings, create chains, and build flexible, playful textile structures from materials you already have.
This workshop is open to everyone and no prior textile experience is needed. All you need to bring are socks. It’s a relaxed, creative session focused on reuse, experimentation and discovering new possibilities in everyday materials.
Emma Shannon is a Reykjavik based, Scottish Textile Artist and Designer whose work explores the intersection of wearable technology and traditional craft. By combining hands-on making with emerging technologies, she specialises in creating inclusive interdisciplinary spaces that foster experimentation and future-facing solutions for sustainability and creative collaboration. As a part of the Endurtakk collective and the repair cafe community her focus has been on the creative reuse, repair and reimagining of locally sourced textiles and clothing.
Further information and registration here: https://borgarbokasafn.is/en/event/creative-technology/make-thek-smelly-feet-textile-emma-shannon
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Borgarbókasafnið Gerðubergi, Gerðuberg 3, 111 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.






