Advertisement
Að þessu sinni ræðum við bækurnar Bernska, Æska og Gift eftir danska rithöfundinn Tove Ditlevsen. Bækurnar eru frekar stuttar hver um sig en mjög áhugaverðar. Tove Ditlevsen (1917-1976) ólst upp í verkmannafjölskyldu á Vesturbrú í Kaupmannahöfn. Tove þykir með merkari höfundum Dana og hefur notið mikilla vinsælda. Verk hennar þykja gefa einstaka innsýn í líf kvenna á 20. öld. Bækurnar eru allar á Storytel og einnig fánlegar á bókasöfnum og í bókabúðum. Ragnheiður Gunnarsdóttir segir okkur frá skáldkonunni og hefur samtalið um bækurnar.Við förum einnig yfir bókmenntakvöldið með Satu Ramö sem haldið var í Bókasafni Suðurnesjabæjar á dögunum og var einstaklega skemmtilegt. Þau sem ekki komust þangað fá sögur af kvöldinu.
Advertisement
Event venue
Bókasafn Reykjanesbæjar, Hjallavegur 2, 260 Reykjanesbær, Ísland, Keflavik, Iceland
Tickets