Advertisement
Krakkaklúbburinn Krummi í Safnahúsinu!Barnamenningarhátíð – Tröllin í fjöllunum
Við teiknum stór tröll með hinum þekkta tröllahöfundi Brian Pilkington og tökum mynd af okkur með tröllinu Tufta, sem kemur í heimsókn í stóra salinn í Safnahúsinu á Barnamenningarhátíð.
Leiðbeinandi: Ingibjörg Hannesdóttir sérfræðingur í fræðslu og miðlun.
Viðburðurinn er styrktur af Barnamenningarhátíðarsjóði Reykjavíkurborgar.
Frítt fyrir alla fjölskylduna!
---
Krakkaklúbburinn Krummi stendur fyrir fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá í hverjum mánuði þar sem kátum krökkum er boðið að fræðast um listaverkin í safneign Listasafns Íslands, skapa listaverk og leika sér í nærandi umhverfi.
Með starfrækslu krakkaklúbbsins vill Listasafn Íslands veita börnum og fjölskyldum þeirra tækifæri til þess að njóta góðra stunda saman á safninu. Dagskráin er vönduð og öllum er velkomið að taka þátt, sér að kostnaðarlausu.
Listasafn Íslands tekur vel á móti öllum börnum og fylgdarmönnum þeirra!
Merki krakkaklúbbsins er fengið út barnabókinni Rauði hatturinn og krummi eftir Ásgerði Búadóttur myndlistarmann.
//
The kids' club Krummi at the House of Collections
Children's Culture Festival – The Trolls in the Mountains
We draw large trolls with the famous author Brian Pilkington and take a picture with the troll Tufta, who visits the main hall of the Museum during the Children’s Culture Festival.
Free entry to this event!
---
For Families
The Gallery encourages families to visit and contemplate the art on their own terms. We also offer diverse programming on a regular basis with an emphasis on enabling families to enjoy time together in creative ways, whether through live guided tours or custom workshops. All events are advertised specially in connection with exhibitions.
The kids' club Krummi runs a varied and fun program every month where cheerful kids are invited to learn about the works of art in the collection of the National Gallery of Iceland, create works of art and play in a nurturing environment.
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Safnahúsið - The House of Collections, Hverfisgata 15, 101 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland