#StayHappening
Wed Dec 02 2026 at 08:00 pm to 09:30 pm UTC+00:00

Jónsson, Hemstock, Gröndal kvartett á Múlanum - útgáfutónleikar

  • Harpa Concert Hall and Conference Centre, 101 Reykjavík, Iceland · Reykjav
Mulinn Jazz club Publisher / Host Mulinn Jazz club
Share
J\u00f3nsson, Hemstock, Gr\u00f6ndal kvartett \u00e1 M\u00falanum - \u00fatg\u00e1fut\u00f3nleikar
Advertisement
Jazzklúbburinn Múlinn heldur áfram með haustdadagskrá sína með spennandi tónleikum miðvikudaginn 2. desember kl. 20:00 á Björtuloftum, Hörpu. Á tónleikunum kemur fram Jónsson, Hemstock, Gröndal kvartett og heldur útgáfutónleika í tilefni af útkomu nýrrar plötu sveitarinnar. Kvartettinn sem er leiddur af bræðrunum Ólafi og Þorgrími Jónssonum ásamt Hauki Gröndal og Matthíasi MD Hemstock flytur frumsamda tónlist eftir meðlimi sveitarinnar. Tónlistin sækir í hefð jazzins en horfir jafnframt fram á við. Um er að ræða framsækinn jazz þar sem fallegar og lagrænar tónsmíðar eru í forgrunni þar sem flytjendurnir fá jafnframt mikið rými til að kanna ólík blæbrigði og möguleika spuna. Tónlistin spannar þannig breitt svið, allt frá frjálsum og orkumiklum spuna yfir í íhugaðar og næmar tónsmíðar þar sem samspil hljóðfæraleikaranna fær að njóta sín. Á tónleikunum verður nýja platan í brennidepli, en jafnframt gefst tækifæri til að upplifa tónlistina í lifandi flutningi, þar sem hún getur tekið á sig nýja mynd og þróast í samspili flytjendanna. Kvartettinn býður upp á tónleika þar sem skapandi spuni og framsækin nálgun mætast í lifandi og fjölbreyttum tónlistarheimi.
Jónsson, Hemstock, Gröndal Quartet – Release Concert
The quartet celebrates the release of its new album with a concert featuring original music by its members. Led by brothers Ólafur and Þorgrímur Jónsson, the quartet explores a progressive approach to jazz, combining strong melodic writing with the freedom and spontaneity of improvisation. The music draws on the traditions of jazz while looking towards new directions. Beautiful and melodic compositions are at the heart of the repertoire, but the musicians are given plenty of space to explore different textures, moods, and possibilities through improvisation. The music therefore moves freely between energetic and open-ended improvisation and more introspective and contemplative compositions, with the interplay between the musicians playing a central role throughout. The new album takes center stage at the concert, offering the audience an opportunity to experience the music in a live setting, where it can evolve and take on new dimensions through the interaction of the musicians. The quartet brings together melodic accessibility, creative improvisation, and a progressive approach to create a vibrant and varied musical experience.
Haukur Gröndal, saxophone
Ólafur Jónsson, saxophone and clarinet
Þorgrímur Jónsson, bass
Matthías MD Hemstock, drums
The concert starts at 20 @ Björtuloft, Harpa Concert House. Tickets ISK 5200.
Spennandi haustdagskrá Múlans heldur síðan áfram á miðvikudagskvöldum fram í miðjan desember. Múlinn er að á sínu 29. starfsári en hann er samstarfsverkefni Félags Íslenskra Hljómlistamanna (FÍH) og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á Jóni Múla Árnasyni sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans.
Múlinn er styrktur af Reykjavíkurborg og SUT sjóðnum og er í samstarfi við Heimstónlistarklúbbinn og Hörpu.
Jazzklúbburinn Múlinn er handhafi Íslensku tónlistarverðalaunanna.
Tónleikar Múlans fara fram á miðvikudagskvöldum klukkan 20:00 á Björtuloftum, fimmtu hæð Hörpu. Miðaverð kr. 5200 og 3800 fyrir nemendur og eldri borgara, miðar fást í miðasölu Hörpu
Advertisement

Event venue

Harpa Concert Hall and Conference Centre, 101 Reykjavík, Iceland, Austurbakki 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjav, Iceland

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you

Keep the plans coming

More events

Textílsögur

Thu, 03 Dec Borgarbókasafnið Spönginni, Spönginni 41