#StayHappening
Wed Dec 16 2026 at 08:00 pm to 09:30 pm UTC+00:00

Jólatónleikar Múlans / Múlakvintettinn

  • Harpa Concert Hall and Conference Centre, 101 Reykjavík, Iceland · Reykjav
Mulinn Jazz club Publisher / Host Mulinn Jazz club
Share
J\u00f3lat\u00f3nleikar M\u00falans \/ M\u00falakvintettinn
Advertisement
Jazzklúbburinn Múlinn lýkur haustdadagskrá sinni með spennandi tónleikum miðvikudaginn 16. desember kl. 20:00 á Björtuloftum, Hörpu. Á tónleikunum kemur hljómsveit klúbbsins, Múlakvintettinn, sem hefur starfað um árabil fram og flytur nýjar útsetningar á sígildum jólalögum. Á efnisskránni eru þekkt og ástsæl jólalög sem flestir þekkja og hafa notið í gegnum tíðina. Hljómur liðinna ára fær hér nýtt líf í höndum hljómsveitarinnar, þar sem gömlu lögin öðlast ferskan blæ og nýja vídd. Tónlistin, útsett fyrir tvo saxófóna og rytmasveit, flæðir áfram af dillandi sveiflu og skapar hlýja og hátíðlega stemningu. Múlakvintettinn býður þannig upp á notalega jólatónleika þar sem sígildar jólaperlur og ferskar útsetningar mætast í lifandi og sveiflukenndum flutningi.
Haukur Gröndal, saxófónn
Ólafur Jónsson, saxófónn
Ásgeir Ásgeirsson, gítar
Þorgrímur Jónsson, bassi
Erik Qvick, trommur
Mulinn Jazz Club Christmas Concert / Mulinn Jazz Club Quintet
The Múlakvintettinn has been active for many years and, at this concert, presents fresh new arrangements of classic Christmas songs from the traditional holiday songbook. The repertoire features beloved and familiar Christmas favorites that generations have grown up with and continue to enjoy.
The sound and spirit of Christmases past are given new life by the ensemble, as these timeless songs take on a fresh character and new dimensions. Arranged for two saxophones and a rhythm section, the music flows with a gentle swing, creating a warm and festive atmosphere.
Múlakvintettinn offers an inviting Christmas concert where timeless holiday classics meet fresh arrangements in a lively and swinging performance.
Haukur Gröndal, saxophone
Ólafur Jónsson, saxophone
Ásgeir Ásgeirsson, guitar
Þorgrímur Jónsson, bass
Erik Qvick, drums
The concert starts at 20 @ Björtuloft, Harpa Concert House. Tickets ISK 5200.
Haustdagskrá Múlans lýkur með þessum tónleikum. Múlinn snýr aftur með spennandi vordagskrá í lok janúar til maí 2027. Múlinn er að á sínu 29. starfsári en hann er samstarfsverkefni Félags Íslenskra Hljómlistamanna (FÍH) og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á Jóni Múla Árnasyni sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans.
Múlinn er styrktur af Reykjavíkurborg og SUT sjóðnum og er í samstarfi við Heimstónlistarklúbbinn og Hörpu.
Jazzklúbburinn Múlinn er handhafi Íslensku tónlistarverðalaunanna.
Tónleikar Múlans fara fram á miðvikudagskvöldum klukkan 20:00 á Björtuloftum, fimmtu hæð Hörpu. Miðaverð kr. 5200 og 3800 fyrir nemendur og eldri borgara, miðar fást í miðasölu Hörpu
Advertisement

Event venue

Harpa Concert Hall and Conference Centre, 101 Reykjavík, Iceland, Austurbakki 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjav, Iceland

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you

Keep the plans coming

More events

Jimmy Carr: Laughs Funny

Wed, 16 Dec at 07:30 am Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre