#StayHappening
Sun, 06 Dec, 2026 at 04:00 pm UTC+00:00

Jólatímavélin - ný tónleikaupplifun fyrir börn og fjölskyldur

  • Salurinn Tónlistarhús · Kopavogur
Salurinn T\u00f3nlistarh\u00fas Publisher / Host Salurinn Tónlistarhús
Share
J\u00f3lat\u00edmav\u00e9lin - n\u00fd t\u00f3nleikaupplifun fyrir b\u00f6rn og fj\u00f6lskyldur
Advertisement
„Svona’ eru jólin“, orti skáldið en um hvaða jól var ort? Jólin sem langamma og langafi upplifðu voru allt öðruvísi en jólin í dag og svo eru hátíðarhöldin fjölbreytt um allan heiminn.
Jólatímavélin er ný tónleikaupplifun fyrir börn og fjölskyldur þar sem tónlist liðinna jóla og skemmtilegar sögur fléttast saman. Tilvalin leið til að vekja áhuga ungra huga á fjölbreytileika tónlistarinnar en á tónleikunum fáum við m.a. að heyra klassík, þjóðlagatónlist, gömul dægurlög og ferskar útsetningar af nýrri tónlist.
Kvartett Jólatímavélarinnar er skipaður einvalaliði íslenskra söngvara sem öll eru félagar í sönghópunum Kyrju og Yrkju. Þau munu leiða alla fjölskylduna í hljómfagurt tímaferðalag um jól, nú og fyrr; í torfbæjum er leikið á langspil við kertaljós, fjarri landsteinum kynnumst við dramatíkinni í Hnotubrjót Tschaikovskys og svo endum við aftur þar sem við lögðum af stað, á Íslandi árið 2026 - rétt áður en jólin nú og hér ganga í garð.
Samferða þessu verður kafað í hljóma, yfirtónasöng og mátt tónlistar til að flytja okkur í annan heim. Þessir skemmtilegu tónleikar eru tilvalin leið til að bjóða jólin velkomin í faðmi fjölskyldunnar. Hver veit nema mandarínur verði í boði?
Kvartett Jólatímavélarinnar eru Sólveig Sigurðardóttir (sópran), Sara Grímsdóttir (alt), Þórhallur Auður Helgason (tenór) og Philip Barkhudarov (bassi). Kvartettinn spratt upp úr sönghópunum Kyrju og Yrkju en Philip og Sólveig eru listrænir stjórnendur þeirra. Öll eru þau atvinnusöngvarar og hafa áralanga reynslu af margvíslegum kórsöng og óperuflutningi en brenna einnig fyrir það að miðla tónlist til áhorfenda á hrífandi, nærtækan hátt.
Viðburðurinn er um klukkutstund án hlés.
Advertisement

Event venue

Salurinn Tónlistarhús, Hamraborg 6, 200 Kópavogsbær, Ísland, Kopavogur, Iceland

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Discover more events by tag

Ask AI if this event suits you

Keep the plans coming

More events in Kopavogur

Kopavogur is happening.

See everything else that’s on — concerts, markets, comedy and more.