Advertisement
Íslenska kirkjan í Noregi í samstarfi við Íslendingafélagið í Stavanger - Islandsk Norsk forening, býður alla velkomna á Jólahátíð sunnudaginn 6.desember í Gausel kirkju í Stavanger.Dagurinn verður hlýr og hátíðlegur með mikilli tónlist, jólalestrum og söngvum, og jólaballi.
Jólahátíðin hefst kl. 15 með aðgengilegri og ljúfri jólaguðsþjónustu fyrir alla fjölskylduna, og að henni lokinni er jólaball í safnaðarheimilinu.
Það verður heitt kaffi á könnunni og allir taka með eitthvað gott á sameiginlegt kaffihlaðborð.
Gengið verður í kringum jólatré og hver veit nema jólaleynigestur mæti á svæðið.
Hlökkum til að sjá ykkur öll og verið hjartanlega velkomin!
Advertisement
Event venue
Gausel Kirke, Heddeveien 141, 4034 Stavanger, Norge, Stavanger, Norway
Tickets