#StayHappening
Sat, 21 Nov, 2026 at 07:00 pm to Sun, 22 Nov, 2026 at 12:00 am UTC+00:00

Jólahlaðborð 2026

  • Hveravellir · Saudarkrokur
Hveravellir Publisher / Host Hveravellir
Share
J\u00f3lahla\u00f0bor\u00f0 2026
Advertisement
Jólahlaðborð 2026
Enn eina ferðina nálgast jól. Halla í betri fötin og boðar til jólahlaðborðs. Margir bíða spenntir því þarna er á ferðinni mögulega besta jólahlaðborð landsins –
Laugardaginn 21 Nóvember Laugardaginn 28 Nóvember og Laugardaginn 5 Desember 2026 fer Eyvindur í búrið og fiskar upp girnilegar hátíðarkræsingarnar af betri sortinni. Stemminguna í þessu boði þekkja allir. Það verður ekkert til sparað.
Á hlaðborðinu er allt þetta Íslenska hefðbundna ásamt einhverju innfluttu góðgæti. Má þar finna taðreykt hangilæri síld og rúgbrauð, kalkúnn og purusteik, reyksoðna bleikju, grafinn lax og jafnvel eitthvað fleira villt úr umhverfinu. Allskonar dásemdar meðlæti og eftirréttir svo til að róa hugann.
Ef einhver á jeppa en vill síður ferðast einn á fjöllum að vetri til munum við reyna eftir fremsta megni að skipuleggja samflot eða leiðbeina eftir bestu getu.
Einnig er möguleiki að útvega far fyrir þá sem það vilja. Kostnaður við það kæmi sérstaklega.
Lúxus Jólahlaðborð og morgunverður.
Hófstillt verð fyrir hlaðborðið og gistingu og svo sérstakt glæsitilboð fyrir þá sem vilja auka nótt á fjöllum.
Ein nótt svefnpokapláss gamla skála með morgunverði og jólahlaðborði ISK 24.900* tilboð í tvær nætur m/morgunmat ISK 29.600*
Eða ein nótt í herbergi með uppábúnu rúmi í Nýja Skála miðað við 2 í herbergi með morgunmat og jólahlaðborði ISK 29.900* á mann og tilboð í tvær nætur m/morgunmat ISK 36.400* á mann
Ein nótt einn í herbergi Nýja Skála með morgunmat og jólahlaðborði ISK 44.900* Tilboð í tvær nætur m/morgunmat ISK 49.900*
* Gistináttaskattur bætist við eins og við á.
Fyrir Bókanir og frekari upplýsingar, þá sendu okkur póst á [email protected] eða í síma 660 1366

Frekari upplýsingar: https://hveravellir.is/jolahladbord-2026/
Advertisement

Event venue

Hveravellir, Mountain Cafe, 735, 541 Húnavatnshreppur, Ísland, Saudarkrokur, Iceland

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Discover more events by tag

Ask AI if this event suits you

Keep the plans coming

More events in Saudarkrokur

Saudarkrokur is happening.

See everything else that’s on — concerts, markets, comedy and more.