Advertisement
Jóga · Öndun · Djúpslökun alla miðvikudaga kl 17:15-18:15🌿 Miðvikudaga kl. 17:15–18:15
🌿 Föstudaga kl. 12:00–13:00
📍 Bolholt 4 · 4. hæð
Verð:
Stakur tími · 3.500 kr.
10 tíma kort · 28.000 kr. · 20% afsláttur
20 tíma kort · 49.000 kr. · 30% afsláttur
🤍 Bókaðu þinn tíma á
www.hjartaheimar.is
Mættu þér eins og þú ert
Gefðu þér klukkutíma til að hægja á, hlusta inn á við og koma heim í líkamann.
Í tímunum hjá Gullu sameinum við mjúka en markvissa hreyfingu, meðvitaða öndun og djúpslökun. Áherslan er ekki á að ná ákveðinni stöðu eða standa sig, heldur að hlusta á líkamann, losa um spennu og skapa meira rými fyrir nærveru og hvíld.
Við vinnum meðal annars með jóga í anda Raja og Ashtanga jóga, þar sem öndunin er rauði þráðurinn í gegnum tímann. Með Ujjayi öndun og mjúkri hreyfingu gefum við líkamanum tækifæri til að mýkjast og losa smám saman um óþarfa spennu.
Öndunin fær sérstakt rými í tímunum. Við lærum að nota hana meðvitað til að hægja á, skapa meiri nærveru og dýpka tenginguna við líkamann.
Í lok hvers tíma · Djúpslökun · Yoga Nidra
Tíminn endar í djúpri slökun þar sem róleg og markviss leiðsögn fylgir þér inn í hvíld. Athyglinni er beint að líkamanum, önduninni og innri upplifun og þú færð rými til að sleppa tökunum og hægja á.
Þú þarft ekkert að gera eða kunna. Þú leggst einfaldlega niður, lokar augunum og fylgir leiðsögninni.
Engin fyrri reynsla er nauðsynleg. Hvort sem þetta er fyrsti tíminn þinn eða þú kemur aftur og aftur, þá ertu velkomin.
Hægðu á · Andaðu · Slepptu · Hvíldu
Advertisement
Event venue
Bolholt 4, 105 Reykjavík, Iceland, Bolholt 4, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets