Advertisement
Ertu tilbúin að hrista af þér stressið, sleppa takinu og leyfa gleðinni að taka völdin?Jóga grúv er orkumikill og skemmtilegur dans- og jógaviðburður þar sem kraftmikil tónlist, dans, flæðandi jógahreyfingar og geggjuð stemning sameinast undir handleiðslu Sigynjar Jöru.
Hún segir þetta um viðburðinn: "Við byrjum á að virkja líkamann með öndun og mjúku jógaflæði áður en við keyrum upp orkuna, finnum taktinn og leyfum tónlistinni að leiða okkur áfram. Síðan hefst dansinn! 🔥Hér þarftu ekki að kunna nein spor, heldur gefa þér leyfi til að dansa í frjálsu flæði. Við endum síðan á teygjum og slökun."
Sigyn mun bæði leiða viðburðinn og stjórna tónlistinni. Hún elskar ekkert meira en að blanda góðri tónlist, jóga og dansi saman. Sigyn útskrifaðist sem jógakennari árið 2020 og hefur verið með dansjóga tíma reglulega í Yoga Shala Reykjavík frá útskrift. Hún hefur einnig prófað sig áfram sem plötsnúður síðustu árin og leikið undir dansi á skemmtistöðum við góðar undirtektir!
Viðburðurinn fer fram 30. október (20:00-21:30) og kostar aðeins 4.900 kr. Engin dans- eða jógareynsla nauðsynleg.
Þú þarft bara að mæta, hreyfa þig og njóta!
Advertisement
Event venue
Skeifan 7,2nd and 3rd floor, 108 Reykjavík, Iceland, Skeifan 7, 108 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Discover more events by tag
Yoga in ReykjavíkDance in ReykjavíkMindfulness in ReykjavíkRelaxation in ReykjavíkExercise in ReykjavíkHealth-wellness in Reykjavík