#StayHappening
Sat, 17 Oct, 2026 at 04:00 pm UTC+00:00

Hárómantík & Hugleiðsla

  • Seltjarnarneskirkja · Reykjav
Sinf\u00f3n\u00eduhlj\u00f3msveit \u00e1hugamanna Publisher / Host Sinfóníuhljómsveit áhugamanna
Share
H\u00e1r\u00f3mant\u00edk & Huglei\u00f0sla
Advertisement
Hljómsveitarstjóri: Oliver Kentish
Einleikari: Andrew J. Yang
Efnisskrá
Pranav Ranjit: Beyond
Sergei Rachmaninoff: Píanókonsert nr. 2
Andrew J. Yang er fæddur og uppalinn í Kaliforníu og útskrifaðist með B.A. í hagfræði og B.M. í píanóleik frá Northwestern háskólanum í Illinois og mastersgráðu í píanóleik frá Mannes tónlistarskólanum í New York. Hann hefur hlotið verðlaun í fjölmörgum alþjóðlegum píanókeppnum, meðal annars í Alþjóðlegu FLAME píanókeppninni í París, Euregio Piano Award keppnina í Þýskalandi, Metropolitan keppnina í New York, Heida Hermanns keppnina í Connecticut, Thaviu-Isaac í Chicago og Franz Liszt keppnina í Los Angeles. Andrew hefur komið fram á tónleikum víða um heim m.a. í Carnegie Hall í New York, Auditorium Marcel Landowski í París, Musiikkitalo í Helsinki og Mozarthaus í Vínarborg. Andrew er stofnandi og listrænn stjórnandi Reykjavík Pianofest og Alþjóðlegu píanóhátíðar Vestfjarða en hlaut sú hátíð hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar árið 2023. Hann flutti til Patreksfjarðar fyrir fimm árum og býr núna á höfuðborgarsvæðinu og kennir við Tónskóla Sigursveins og Tónskólann í Reykjavík.
Í tónsmíðum sínum sækir Pranav Ranjit innblástur í upplifun af náttúrunni, ýmsar hefðir þjóðlagatónlistar og andstæður fyllingar og þagnar. Úr þessum ólíku þáttum verður til tónlist þar sem kyrrð og hljóð, hið smáa og hið yfirgripsmikla, mætast og mynda heild.
Ranjit hefur hlotið Eisner-verðlaunin fyrir framlag sitt til skapandi lista en hann hefur stundað nám í Bandaríkjunum, Eistlandi og á Íslandi og var einnig skiptinemi við Sibeliusar-akademíuna í Finnlandi.
Advertisement

Event venue

Seltjarnarneskirkja, Kirkjubraut 2, 170 Seltjarnarnesbær, Ísland, Reykjav, Iceland

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you

Keep the plans coming

More events