Advertisement
Hlaupið fyrir Píeta verður haldið 3. apríl. 2027Viðburðurinn er óháður staðsetningur en við munum hittast á fjórum stöðum á landinu.
💛Vífilstaðavatn í Garðabæ frá kl 9 til 13
Viðburðurinn er þannig upp byggður að um er að ræða samveru sem felur í sér vitundarvakningu um Píeta Samtökin. Þetta er ekki keppni, þetta er bara spruning um að fara út og mæta sjálfum sér. Það er enginn tímatökubúnaður - þannig við erum bara að koma saman og njóta.
Þetta er sjötta árið í röð sem Börkur Brynjarsson stendur fyrir þessu hlaupi til að vekja athygli á þjónustu Píeta samtakanna og hvetja fólk til að styrkja samtökin.
Börkur segir einnig:
„Í ár er ástæðan persónulegri en nokkru sinni – ég hef sjálfur þurft á aðstoð Píeta að halda síðustu mánuði.“
Þú þarft ekki að vera hlaupari.
Þú mátt labba, hlaupa, labba og hlaupa – eða bara koma og sýna stuðning.
Þetta snýst ekki um tíma eða vegalengd.
Þetta snýst um að mæta. Fyrir lífið. Fyrir samtalið.
Það kostar ekkert að taka þátt í hlaupinu en boðið uppá að styrkja samtökin hér: https://pieta.is/product/3-500-kr-styrkur/
Einnig verður hægt að styrkja í gegnum posa á staðnum eða með millifærslu á: 0301-26-041041, Kt: 410416-0690
💛 Þú ert velkomin(n). 💛
Advertisement
Event venue
Vífilsstaðavatn, Kopavogur, Iceland
Tickets
Discover more events by tag
Running in KopavogurFestivals in KopavogurHealth-wellness in KopavogurNonprofit in KopavogurParties in KopavogurMeetups in Kopavogur