Advertisement
Barbara Hannigan og píanóleikarinn Bertrand Chamayou bjóða til einstakra söngtónleika í Norðurljósum. Þessir tónleikar hafa farið sigurför um heiminn á undanförnum misserum og íslenskir tónlistarunnendur fá nú loks tækifæri til að njóta þeirra. Verkin á efnisskránni eiga öll uppruna í samspili náttúru og þeirra goðsagna sem mannkynið hefur mótað til að reyna að skilja heiminn. Þrír ólíkir meistarar eiga tónlistina hér en tveir þeirra, Messiaen og Skrjabín, eru jafnan taldir einhver frumlegustu og áhrifamestu tónskáld 20. aldar. Við bætist tónlist bandaríska tónskáldsins og spunameistarans Johns Zorn sem alltaf nær að skjóta sér undan skilgreiningum og koma á óvart. Tónleikarnir voru valdir meðal bestu tónleika ársins í New York á árinu 2024 af tónlistarblaðamönnum New York Times en í umsögn blaðsins sagði að þar töfruðu þau Hannigan og Chamayou fram epískan heim kvenorku og sköpunarkrafta.Efnisskrá
Olivier Messiaen: Chants de Terre et de Ciel / Söngvar himins og jarðar
Aleksandr Skrjabín: Poème-Nocturne / Næturljóð
Aleksandr Skrjabín: Vers la flamme / Til logans
John Zorn: Jumalattaret / Gyðjur
Sópran
Barbara Hannigan
Píanó
Bertrand Chamayou
//
Barbara Hannigan and pianist Bertrand Chamayou offer a unique concert in the Norðurljós Hall. This concert has been a global success in recent years, and Icelandic music lovers are now finally getting the chance to enjoy it. The works in the programme all originate from the interaction between nature and the myths that humanity has created in an attempt to understand the world. The music comes from three different masters, but two of them, Messiaen and Scriabin, are traditionally considered some of the most original and influential composers of the 20th century. Added to this is the music of American composer and improviser John Zorn, who always manages to evade definitions and surprise his listeners. The concert was named as one of the best of the year in New York by the music journalists of the New York Times in 2024, and the newspaper's review said that Hannigan and Chamayou conjured up an epic world of female energy and creativity.
Program
Olivier Messiaen: Chants de Terre et de Ciel
Alexander Scriabin: Poème-Nocturne
Alexander Scriabin: Vers la flamme
John Zorn: Jumaletteret
Soprano
Barbara Hannigan
Piano
Bertrand Chamayou
Advertisement
Event venue
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre, Austurbakki 2,Reykjavík, Iceland, Reykjav
Tickets