Hafa þær einhverju breytt? Málþing um kvenhetjur í sögum Steinunnar Sigurðardóttur

Mon Sep 15 2025 at 04:30 pm to 07:00 pm UTC+00:00

Edda - hús íslenskunnar | Reykjavík

Hugv\u00edsindasvi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands
Publisher/HostHugvísindasvið Háskóla Íslands
Hafa \u00fe\u00e6r einhverju breytt? M\u00e1l\u00feing um kvenhetjur \u00ed s\u00f6gum Steinunnar Sigur\u00f0ard\u00f3ttur
Advertisement
Í tilefni af endurútgáfu skáldsögunnar Ástin fiskanna, í ritröðinni íslensk klassík, stendur Bókmennta- og lisftfræðastofnun Háskóla Íslands í samstarfi við Forlagið fyrir málþingi þar sem sjónum er beint að kvenhetjum í skáldsögum og sannsögum Steinunnar Sigurðardóttur.
Málþingið verður haldið í fyrirlestrasal Eddu, mánudaginn 15. september kl. 16:30-19:00. Húsið opnar kl. 16:30 en dagskrá hefst kl. 17:00. Umræðustjóri verður Freyr Eyjólfsson.
Stuttar framsögur flytja:
- Alda Björk Valdimarsdóttir um Öldu í Tímaþjófinum
- Ástráður Eysteinsson um Samöntu í Ástinni fiskanna
- Gunnar Snorri Gunnarsson um Vigdísi forseta í Ein á forsetavakt
- Guðrún Steinþórsdóttir um LínLín í BÓL og Lillu í Sólskinshesti
- Halldór Guðmundsson um Hörpu í Hjartastað
- Rúnar Helgi Vignisson um Heiðu fjalldalabónda
- Viðar Hreinsson um Systu í Systu megin
Persónusköpun Steinunnar hefur markað djúp spor í íslenskar bókmenntir allt frá upphafi skáldsagnaferils hennar. Kvenhetjur hennar, hvort sem um er að ræða skáldskap eða sannsögur, endurspegla víddir íslensks samfélags, menningar og sjálfsmyndar. Á málþinginu verður rætt um hinar innbyrðis ólíku kvenhetjur í verkum Steinunnar, frá Öldu í Tímaþjófinum og Samöntu í Ástinni fiskanna til Heiðu fjalldalabónda og Vigdísar forseta og hlutverk og áhrif þeirra í bókmenntasögulegu og menningarlegu samhengi.
Steinunn Sigurðardóttir hefur á löngum og sérlega fjölbreyttum höfundarferli sent frá sér jöfnum höndum skáldsögur og ljóðabækur, auk sannsagna, smásagna, barnabókar og leikrita.
Hún hefur hlotið margvísleg verðlaun og viðurkenningar fyrir ritstörf sín, þar á meðal Íslensku bókmenntaverðlaunin öðru sinni fyrir BÓL, Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar, Ljóðaverðlaun Guðmundar Böðvarssonar og Fjöruverðlaunin. Þá hefur Háskóli Íslands sæmt hana heiðursdoktorsnafnbót. Verk hennar hafa verið þýdd víða og vakið alþjóðlega athygli og margar skáldsögur hennar teljast sígildar.
Umræðuþingið er öllum opið og orðið er viðstöddum frjálst.
Advertisement

Event Venue & Nearby Stays

Edda - hús íslenskunnar, Arngrímsgata 5, 107 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Sharing is Caring:

More Events in Reykjavík

PINA - aukas\u00fdning \u00ed tilefni af 40 \u00e1ra afm\u00e6lis Kramh\u00fassins!
Sun, 14 Sep at 05:00 pm PINA - aukasýning í tilefni af 40 ára afmælis Kramhússins!

Hverfisgata 54, 101 Reykjavík, Iceland

Styrktarkv\u00f6ld Alan\u00f3 2025
Sun, 14 Sep at 06:30 pm Styrktarkvöld Alanó 2025

Holtagarðar

Paris, Texas - Svartir Sunnudagar!
Sun, 14 Sep at 09:00 pm Paris, Texas - Svartir Sunnudagar!

Hverfisgata 54, 101 Reykjavík, Iceland

HATHA YOGA COURSE (in person or\/and online)
Mon, 15 Sep at 12:00 pm HATHA YOGA COURSE (in person or/and online)

Frakkastígur 16, 101 Reykjavík, Iceland

XIV. Umhverfis\u00feing 15.-16. september
Mon, 15 Sep at 01:00 pm XIV. Umhverfisþing 15.-16. september

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre

RUMBA Annual General Meeting
Mon, 15 Sep at 05:00 pm RUMBA Annual General Meeting

Menntavegur 1, 101 Reykjavík, Iceland

\u00deing Heilbrig\u00f0isv\u00edsindasvi\u00f0s 2025
Tue, 16 Sep at 01:00 pm Þing Heilbrigðisvísindasviðs 2025

Háskóli Íslands

Posing Workshop & Photo Walk in Reykjav\u00edk
Tue, 16 Sep at 05:00 pm Posing Workshop & Photo Walk in Reykjavík

Harpa

Hvernig gef \u00e9g \u00fat t\u00f3nlist?
Tue, 16 Sep at 05:30 pm Hvernig gef ég út tónlist?

Austurstræti 5, 101 Reykjavík, Iceland

Fl\u00f6kt
Tue, 16 Sep at 08:00 pm Flökt

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre

\u00d6ndun & Huglei\u00f0sla - N\u00e1mskei\u00f0 me\u00f0 T\u00f3masi
Tue, 16 Sep at 08:00 pm Öndun & Hugleiðsla - Námskeið með Tómasi

Skeifan 7, 108 Reykjavík, Iceland

Reykjavík is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Reykjavík Events