Advertisement
Þetta kvöld þarf að setja í dagatalið strax!
En við fáum Skúla Skúlasson prófessor í líffræði í heimsókn í sófann að ræða afar spennandi málefni, en það er frumbyggja vizkuna varðandi tengsl okkar við náttúruna.
Þórhildur spyr nokkura innleiðandi spurninga fyrst, svo taka við opnar umræður og spurningar til Skúla.
Allir velkomnir.
Léttar veitingar.
Málefnið er afar áhugavert og hefur fengið aukna athygli undanfarin ár. Í frumbyggjavisku er litið á manninn sem órjúfanlegan hluta náttúrunnar, ekki sem aðskilda veru. Allt líf er samtengt og hver einasta lífvera hefur sinn sess og sitt gildi.
Aðeins um Skúla frá Náttúrufræðingnum:
Skúli Skúlason (f. 1958) lauk BS-prófi í líffræði við Háskóla Íslands 1981, fjórðaársnámi í líffræði við sama skóla 1983, meistaraprófi 1986 og doktorsprófi í dýrafræði 1991 við Háskólann í Guelph, Kanada. Hann var nýdoktor við Háskólann í Kaliforníu, Berkeley, Bandaríkjunum, 1991. Skúli hefur síðan starfað sem kennari og síðar skólameistari Hólaskóla og rektor Háskólans á Hólum. Hann er nú prófessor við Fiskeldis- og fiskalíffræðideild skólans, og frá 2019 einnig sérfræðingur við Náttúruminjasafn Íslands. Skúli hefur helgað sig rannsóknum í þróunarfræði með áherslu á norðlæga vatnafiska. Hann tók þátt í stofnun BIODICE 2020 og er formaður stjórnar samstarfsvettvangsins.
Advertisement
Event venue
Hagamelur 67, 107 Reykjavík, Iceland, Hagamelur 67, 107 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjav, Iceland
Tickets