Advertisement
Í amstri aðventunnar er mikilvægt að staldra aðeins við, njóta augnabliksins og finna friðinn sem jólin færa okkur.Hvítasunnukirkjan á Selfossi býður ykkur hjartanlega velkomin á Friðarjól, hátíðlega jólatónleika þar sem hæfileikaríkt tónlistarfólk á öllum aldri kemur saman og flytur fallega og fjölbreytta jólatónlist.
Við viljum skapa notalega stund þar sem við fáum að njóta tónlistarinnar, eiga saman dýrmæta stund og minna okkur á það sem jólin snúast um – fæðingu Jesú Krists og þann frið, kærleika og von sem hann færir okkur.
Miðaverð: 4.500 kr.
Hægt er að nálgast miða hér 👉 https://tix.is/event/22608/fridarjol
Advertisement
Event venue
Sviðið, Miðbær Selfoss,Selfoss, Iceland
Tickets