Advertisement
FÍLD - félag íslenskra listdansara býður danskennurum sem kenna í grunnskólum til þess að hittast, deila reynslu og kynnast. Við byrjum á stuttri kynningu á starfsemi FÍLD ásamt nokkrum vel völdum hópeflisleikjum. Kennarar deila reynslu sinni og aðferðum í kennslu og við ljúkum kvöldinu með samtali þar sem við getum öll deilt reynslu og þekkingu á faginu.
FÍLD hefur einnig áhuga á því hvernig við sem fagfélag getum stutt við þann hóp danskennara sem kenna í grunnskólum landsins.
Léttar veitingar verða í boði.
Fyrir hverja:
danskennara sem kenna í grunnskólum og þá sem hafa áhuga á að kenna dans í grunnskólum.
Kennarar sem deila: verður tilkynnt þegar nær dregur.
Skráning: https://forms.gle/4jCy4yWHQRikxYov6
Aðgengi:
Það er gott aðgengi á dansverkstæðinu.
Spurningar má senda á [email protected]
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Hjarðarhagi 47 107 Reykjavík, Iceland, Hjarðarhagi 47, 107 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland
Tickets