Skartgripanámskeið - mótaðu þitt eigið skart

Tue Oct 08 2024 at 07:30 pm

Rauðarárstígur 1, 105 Reykjavíkurborg, Ísland | Reykjavík

Lilja Bj\u00f6rk Jewellery
Publisher/HostLilja Björk Jewellery
Skartgripan\u00e1mskei\u00f0 - m\u00f3ta\u00f0u \u00feitt eigi\u00f0 skart
Advertisement
Á þessu námskeiði ert þú listamaðurinn þar sem þú mótar þinn eigin hring eða hálsmen með vaxi. Við fylgjum aðferð sem kallast "Lost Wax Casting" eða vaxmótum. Vaxið er ekki eins og venjulegt kertavax, heldur sérhannað fyrir vaxmótun. Aðferðin er þúsund alda gömul, í nútímavæddum búningi. Eftir námskeiðið tekur Lilja gripinn og býr til steypumót og hellir bræddu 925 silfri ofan í mótið. Steypuferlið tekur tvo daga, eftir það slípar Lilja gripinn og pússar upp. Við bjóðum einnig upp á að gullhúða gripinn með 18 karata gullhúðun.
Innifalið í námskeiðinu er 925 silfurskartgripur sem þú mótar með vaxaðferðinni. Allur búnaður er á staðnum. Þú munt læra og fá innsýn inn í hvernig skartgripir eru búnir til. Þetta getur líka verið einstakt tækifæri til að búa til skartgrip fyrir einhvern sem þér þykir vænt um. Hægt er til dæmis að stimpla fingrafarið sitt á gripinn. Námskeiðið er í tvær klukkustundir, staðsett hjá Flóð og Fjöru á Rauðarárstíg 1, 105 Reykjavík. Gripinn færðu afhentan 1-3 vikum eftir námskeiðið. Bæði hægt að sækja eða fá sent með Dropp gjaldlaust.
Athugið að í þessu námskeiði verða oftast til óreglulegir skartgripir með náttúrulegu formi. Ef þú vilt búa til stílhreinan hring eða hálsmen þá mæli ég ekki með þessu námskeiði. Afbókanir á námskeið þurfa að berast innan 48 tíma. Það getur komið fyrir að steypan misheppnist, ef það gerist færðu að velja á milli þess að taka aftur þátt í námskeiðinu eða fá heimakitt þar sem þú færð öll verkfæri og þinn tíma.
Um Lilju Björk
Lilja Björk lærði í Kaupmannahöfn í skólanum København Erhvervsakademi (KEA). Hún útskrifaðist með BA iðngráðu í skartgripahönnun, viðskiptafræði og tækni (Jewellery design, Business and Technology). Í skólanum var kennt allt frá því að smíða skartgripi, 3D teiknun, hönnun og viðskiptafræði. Lost Wax Casting / Vaxmótun var stór hluti af náminu. Eftir námið fór Lilja í fæðingarorlof og flutti heim, var á krossgötum í lífinu sem einstæð móðir. Hún fékk óvænt verkefni að 3D teikna Bleiku Slaufuna sem kom út 2023 eftir byLovísa og EIR. Á þessum krossgötum ákvað Lilja að elta draumana og stofna sitt eigið fyrirtæki, Lilja Björk Jewellery í nóvember 2023. Síðan þá hefur hún verið að byggja það upp og fjárfesti í steyputækjum til að minnka fótspor fyrirtækisins og vera umhverfisvænni en allir skartgripirnir eru smíðaðir á Íslandi með 925 endurunnu silfri. Hún býður einnig upp á að endurnýja gamalt skart og gefa því nýtt líf með 18 karata gullhúðun.
Advertisement

Event Venue & Nearby Stays

Rauðarárstígur 1, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Rauðarárstígur 1, 105 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland

Tickets

Discover more events by tags:

Jewellery in Reykjavík

Sharing is Caring: