Ferðaþjónustudagurinn 2024 – Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum

Mon Oct 07 2024 at 08:30 am to 04:30 pm

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre | Reykjavík

Samt\u00f6k fer\u00f0a\u00fej\u00f3nustunnar
Publisher/HostSamtök ferðaþjónustunnar
Fer\u00f0a\u00fej\u00f3nustudagurinn 2024 \u2013 \u00c1lagsst\u00fdring \u00e1 fj\u00f6ls\u00f3ttum fer\u00f0amannast\u00f6\u00f0um
Advertisement
Ferðaþjónustudagurinn 2024 – takið daginn frá!
Ferðaþjónustudagurinn 2024 verður haldinn í Hörpu mánudaginn 7. október undir yfirskriftinni „Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum“.
Ráðstefnan fer fram í Silfurbergi og hefst kl. 9.00 og stendur til 16.30. Tryggðu þér miða strax!
Allar upplýsingar um dagskrá, erlenda fyrirlesara og praktísk atriði er að finna á vef ráðstefnunnar: http://saf.is/ferdathjonustudagurinn-2024/
Samtök ferðaþjónustunnar standa að Ferðaþjónustudeginum 2024 í samstarfi við Ferðamálastofu, Umhverfisstofnun, Vatnajökulsþjóðgarð og Þingvallaþjóðgarð.
Álagsstýring – áskoranir og tækifæri
Á ráðstefnunni verður fjallað um álagsstýringu á fjölsóttum ferðamannastöðum þar sem sjónum verður meðal annars beint að áskorunum og reynslu hér á landi sem erlendis og samtali stjórnvalda og fyrirtækja í ferðaþjónustu um þetta mikilvæga viðfangsefni. Þá verður jafnframt horft til nýsamþykktrar ferðamálastefnu í þessu samhengi sem leggur áherslu á þrjár víddir sjálfbærnihugtaksins – efnahag, samfélag og umhverfi.
Erlendir og innlendir fyrirlestrar ásamt umræðum
Fyrirlesarar frá Department of Conservation í Nýja Sjálandi, Visit Scotland og Þjóðgarðastofnun Bandaríkjanna (e. National Park Service) munu segja frá skipulagi álagsstýringar á ferðamannastöðum í þessum þremur löndum, rýna í raundæmi og fjalla um reynslu af útfærslu og framkvæmd stýringar á álagi í samhengi við ávinning og áskoranir ferðaþjónustufyrirtækja.
Meðal annarra þátttakenda í ráðstefnunni verða Einar Á. E. Sæmundsen frá Þingvallaþjóðgarði, Ingibjörg Halldórsdóttir frá Vatnajökulsþjóðgarði, Inga Dóra Hrólfsdóttir frá Umhverfisstofnun, Arnar Már Ólafsson ferðamálastjóri og Ragnar Árnason frá Háskóla Íslands, ásamt ráðherrum ferðamála og umhverfismála.
Takið mánudaginn 7. október frá!
Við hlökkum til að sjá ykkur!
Samtök ferðaþjónustunnar, Ferðamálastofa, Umhverfisstofnun, Vatnajökulsþjóðgarður og Þingvallaþjóðgarður standa að Ferðaþjónustudeginum 2024.
Advertisement

Event Venue & Nearby Stays

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre, Austurbakki 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland

Tickets

Sharing is Caring: