Advertisement
Jólabókaflóðið hefst í Hörpu!Íslenskir bókaútgefendur kynna og selja nýjustu bækur sínar og hægt verður að nálgast prentútgáfu Bókatíðinda. Menningardeild Morgunblaðsins býður upp á vandaða bókmenntadagskrá á laugardeginum og mbl.is streymir jólabókaupplestri frá Norðurbryggju báða dagana.
Alls koma um 130 höfundar fram og lesa úr nýútgefnum barnabókum, skáldverkum og ljóðabókum. Þjóðþekktir höfundar og ný skáld afgreiða og árita verk sín og fjórir gestahöfundar frá Færeyjum og Grænlandi heimsækja hátíðina með stuðningi Vestnorræna höfuðborgasjóðsins.
Bókahátíðin í Hörpu verður haldin dagana 21.–22. nóvember, kl. 11–17 báða daga. Aðgangur ókeypis.
Advertisement
Event venue
Harpa , Reykjavík, Iceland, Austurbakki 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjav, Iceland
Tickets