#StayHappening
Fri, 30 Oct, 2026 at 04:00 pm to Sun, 01 Nov, 2026 at 12:00 pm UTC+00:00

Ayurveda dekurhelgi fyrir dömur -Skálholti

  • Skálholt · Selfoss
\u00c1st og Fri\u00f0ur - Ayurveda studio Publisher / Host Ást og Friður - Ayurveda studio
Share
Ayurveda dekurhelgi fyrir d\u00f6mur -Sk\u00e1lholti
Advertisement
Ayurveda helgardekur fyrir dömur. Tilvalið til að styrkja taugakerfið og byggja sig upp fyrir veturinn.
Það er eitthvað við Skálholt sem er svo friðsælt og róandi. Fallegt útsýni til fjallanna með Skálholtskirkju sem þar stendur og blessar svæðið. Við ætlum því að dvelja í þessari friðsæld og fegurð eina helgi í byrjun vetrar til að hlaða batteríin og slaka á taugakerfinu. Við dveljum á Hótel Skálholti þar sem hvert herbergi er með sérbaðherbergi og fyrir utan eru heitir pottar þar sem tilvalið er að láta líða úr sér á kvöldin og kannski láta norðurljósin sjá sig.
Við tökum fræðsluspjall um meðfæddar líkamsgerðir og hver og ein dama fær aðstoð við að finna út sína líkams- og hugargerð. Við munum einnig spjalla um verkfæri ayurveda lífsvísindanna til að halda heilsu og hvernig er hægt að nota þessi verkfæri í daglegu lífi.
Dagurinn hefst á léttri jógastund fyrir morgunverð. Létt ganga um svæðið eftir morgunverð og kirkjan kannski heimsótt.
Fræðsluspjall fyrir hádegisverðinn og síðan hægt að slaka á eftir mat þar til annað fræðsuspjall verður tekið með hollum og góðum ayurveda drykk og nasli um kaffileitið.
Í eftirmiðdaginn verður lagst í jóga nidra djúpslökun og tónbað með gong og skálum.
Eftir það getur Heiða Björk gefið einni heppinni LNT orkumeðferð (heilun) LNT stendur fyrir La Nueva Terapia sem er 30 ára gömul aðferð til að opna fyrir flæði í orkurásunum og losa þar um stíflur til að heilun geti átt sér stað.
Fæðið verður grænmetisfæði sem listakokkurinn Bjarki Þór mun töfra fram fyrir okkur. Heilandi og hreinsandi.
Heiða Björk útbýr cacao með ayurveda áherslum og heimalagað meltingar- og efnaskiptate til að sötra með hollu og góðu nasli um eftirmiðdaginn.
Til sölu verður ýmislegt tengt ayurveda á afslætti eins og krydd sem styrkja meltingu, CCF fræblandan, Jurtir sem styrkja hugann, Meltingarjurtir, tungusköfur, jurtastyrktar olíur, kryddghee og fleira.
Hver dama fær að gjöf ayurveda vörur að verðmæti um 10.000 kr.
Það er tilvalið að mæta með glósubók með sér til að geta punktað niður hitt og þetta úr ayurveda spjallinu.
Ekki gleyma kósífötunum og baðfötunum! Við ætlum að að dvelja í dekri og dúlli yfir helgina og þá gæti líka verið sniðugt að hafa með sér góð bók til að lesa fyrir svefninn og góða olíu til að bera á líkamann því Heiða Björk mun kenna dömunum að gera abhyanga sem er sjálfsnudd með olíu. Abhyanga er eitt það besta sem hægt er að gera til að róa taugakerfið.
Einstaklingsherbergi 111.000 kr
Tveggjamannaherbergi 92.000 kr
10.000 kr snemmskráningar afsláttur
ef bókað fyrir 1. september og eftirstöðvar greiddar fyrir 2. október
Skráning á www.astogfridur.is
Advertisement

Event venue

Skálholt, Skálholt, Skálholt, 806 Bláskógabyggð, Ísland, Selfoss, Iceland

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Discover more events by tag

Ask AI if this event suits you

Keep the plans coming

More events in Selfoss

Selfoss is happening.

See everything else that’s on — concerts, markets, comedy and more.