#StayHappening
Sun Aug 30 2026 at 09:00 pm to 09:45 pm

Anna Gréta, Silva Þórðar ásamt Ómari Guðjónssyni (IS)

  • IÐNÓ · Reykjavík
Reykjav\u00edk Jazz Festival Publisher / Host Reykjavík Jazz Festival
Share
Anna Gr\u00e9ta, Silva \u00de\u00f3r\u00f0ar \u00e1samt \u00d3mari Gu\u00f0j\u00f3nssyni (IS)
Advertisement
(English below)
Anna Gréta, Silva Þórðar ásamt Ómari Guðjónssyni (IS)
Sunnudagurinn 30. ágúst | Iðnó
21:00
Kvöldpassi*
Söngkonurnar Anna Gréta og Silva Þórðardóttir sameina krafta og bjóða upp á hugljúfar ábreiður, frumsamið efni og uppáhalds jazzinn sinn. Silva og Anna Gréta hafa verið bestu vinkonur síðan á unglingsárunum og þróað með sér einstakt samspil og sameiginlega tilfinningu fyrir túlkun. Þær koma núna fram í fyrsta skipti með frumsamið efni sem þær hafa unnið að saman og með þeim leikur Ómar Guðjónsson á pedal steel og gítar.
Silva Þórðardóttir hefur um árabil verið meðal vinsælustu jazzradda landsins. Hún gaf út plötuna Skylark árið 2019 og hefur hlotið þrjár tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir jazzsöng, auk þess að koma reglulega fram með Jazzkonum og mörgum af fremstu jazzleikurum Íslands.
Anna Gréta, píanóleikari, söngkona og tónskáld, hefur vakið athygli á Norðurlöndum og víðar með plötum sínum Nightjar in the Northern Sky (2021) og Star of Spring (2024) á vegum ACT Music. Hún hefur unnið íslensku tónlistarverðlaunin þrisvar sinnum og skapað sér sterkan sess sem ein áhugaverðasta jazztónlistarkona sinnar kynslóðar.
Silva Þórðardóttir - söngur
Anna Gréta - söngur, píanó og hljómborð
Ómar Guðjónsson - pedal steel og gítar
Sunnudagur 30. ágúst
19:00 – Iðnó | Tu ha? Tu bjö! (IS)
20:00 – Iðnó | Mikael Máni quintet (IS)
21:00 – Iðnó | Anna Gréta, Silva & Ómar Guðjónsson (IS)
Kvöldpassi kostar 7.990 kr. í Iðnó en við bjóðum upp á afsláttarverð, 5.990 kr., fyrir þau sem kjósa lægra verð og sérstakt stuðningsverð fyrir velunnara hátíðarinnar, 8.990 kr.
////
Anna Gréta, Silva Þórðar & Ómar Guðjónsson (IS)
Sunday August 30 | Iðnó
21:00
Evening pass*
Singers Anna Gréta and Silva Þórðardóttir join forces for a concert featuring intimate interpretations, original material, and some of their favorite jazz songs.
Silva and Anna Gréta have been best friends since their teenage years and have developed a unique musical chemistry and shared sensitivity for interpretation. They now appear together for the first time performing original material they have created collaboratively. Joining them is Ómar Guðjónsson on pedal steel and guitar.
Silva Þórðardóttir has for many years been among Iceland’s most beloved jazz vocalists. She released the album Skylark in 2019 and has received three nominations at the Icelandic Music Awards for jazz vocals. She also performs regularly with Jazzkonur and many of Iceland’s leading jazz musicians.
Anna Gréta has gained recognition across the Nordic countries and beyond through her albums Nightjar in the Northern Sky (2021) and Star of Spring (2024), both released through ACT Music. She has won the Icelandic Music Awards three times and established herself as one of the most compelling jazz artists of her generation.
Performers:
Silva Þórðardóttir — vocals
Anna Gréta — vocals, piano, and keyboards
Ómar Guðjónsson — pedal steel and guitar
Sunday August 30
19:00 – Iðnó | Tu ha? Tu bjö! (IS)
20:00 – Iðnó | Mikael Máni quintet (IS)
21:00 – Iðnó | Anna Gréta, Silva & Ómar Guðjónsson (IS)
The evening pass costs ISK 7,990 at Iðnó. A reduced price of ISK 5,990 is available for those who choose a lower price, and a special supporter price of ISK 8,990 is offered for friends of the festival.
Advertisement

Event venue

IÐNÓ, Vonarstræti 3, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Tickets
Concerts, fests, parties, meetups — all the happenings, one place.

Discover more events by tag

Ask AI if this event suits you