Advertisement
Jazzklúbburinn Múlinn heldur áfram með haustdadagskrá sína með spennandi tónleikum miðvikudaginn 4. nóvember kl. 20:00 á Björtuloftum, Hörpu. Á tónleikunum kemur fram tríó gítarleikarans Andrésar Þórs og verður flutt efni af nýjustu plötu þess, Relocate. Platan kom út um miðjan ágúst hjá norsku plötuútgáfunni Losen Records. Tríóið skipa Andrésar, Nico Moreux á bassa og Magnús Trygvason Eliassen á trommur. Þeir hafa leikið saman um árabil og myndað sterka heild þar sem samspil, spuni og opið rými skipa stóran sess. Relocate hefur að geyma nýja tónlist eftir Andrés Þór með áherslu á samspili tónsmíða og spuna. Tónlistin sækir í fjölbreyttan orðaforða djassins en gefur jafnframt hljóðfæraleikurunum mikið rými til að bregðast hver við öðrum og leyfa tónlistinni að þróast í rauntíma. Á tónleikunum verður platan í forgrunni, ásamt öðru efni úr katalóg tríósins. Þar má búast við lifandi og kraftmiklum flutningi þar sem tónsmíðarnar taka á sig nýja mynd. Andrés Þór Trio – Relocate
Andrés Þór brings his trio and feature music from the trio’s latest album, Relocate. Released in mid-August 2026 by the Norwegian record label Losen Records, the album marks the latest chapter in the trio’s ongoing musical collaboration. The trio features Andrés Þór on guitar, Nico Moreux on double bass, and Magnús Trygvason Eliassen on drums. Having played together for several years, the three musicians have developed a strong and highly responsive musical chemistry, with improvisation, interaction and space at the heart of their sound. Relocate features new compositions by Andrés Þór, exploring the relationship between written music and improvisation. Drawing on a broad jazz vocabulary, the music leaves plenty of room for the musicians to respond to one another and allow each performance to develop organically in the moment. The concerts will focus on music from Relocate, alongside other material from the trio’s repertoire. Audiences can expect an energetic and spontaneous performance in which the compositions are given new life through the interaction of the three musicians.
Andrés Þór Gunnlaugsson, guitar
Nico Moreux, bass
Magnús Trygvason Eliassen, drums
The concert starts at 20 @ Kaldalón, Harpa Concert House. Tickets ISK 5200.
Spennandi haustdagskrá Múlans heldur síðan áfram á miðvikudagskvöldum fram í mðjan desember. Múlinn er að á sínu 29. starfsári en hann er samstarfsverkefni Félags Íslenskra Hljómlistamanna (FÍH) og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á Jóni Múla Árnasyni sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans.
Múlinn er styrktur af Reykjavíkurborg og SUT sjóðnum og er í samstarfi við Heimstónlistarklúbbinn og Hörpu.
Jazzklúbburinn Múlinn er handhafi Íslensku tónlistarverðalaunanna.
Tónleikar Múlans fara fram á miðvikudagskvöldum klukkan 20:00 á Björtuloftum, fimmtu hæð Hörpu. Miðaverð kr. 5200 og 3800 fyrir nemendur og eldri borgara, miðar fást í miðasölu Hörpu
Advertisement
Event venue
Harpa Concert Hall and Conference Centre, 101 Reykjavík, Iceland, Austurbakki 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjav, Iceland
Tickets