Advertisement
Vikunámskeið í 3D prentun og hönnun Fyrir krakka 10–13 ára10 ágúst – 14 ágúst 2026
Mánudag til föstudags kl. 10:00–14:00
Fjörheimar - Hafnargötu 88
Langar þig að læra að hanna og prenta eigin leikföng, skrautmuni og skapandi verkefni í þrívídd?
Á þessu skemmtilega og hagnýta vikunámskeiði lærir þú allt frá því að teikna fyrstu 3D módelið þitt yfir í að sjá það verða að raunverulegum hlut í 3D prentara!
Námskeiðið hentar bæði byrjendum og þeim sem hafa aðeins prófað áður.
Hvað lærir þú?
Þrívíddarhönnun
Við lærum að nota Tinkercad til að hanna eigin hluti skref fyrir skref.
Þú lærir meðal annars að teikna og búa til:
• Lyklakippur með nafni
• Fígúrur og karaktera
• Litla bíla og farartæki
• Símahaldara
• Nafnaskilti
• Eigin verkefni
Allt sem þáttakendur búa til taka þeir með sér heim.
Um kennarann
Kennari námskeiðsins er Einar Mikael, töframaður og einn reynslumesti 3D prentunaráhugamaður landsins.
Einar hefur unnið í mörg ár með þrívíddarhönnun og 3D prentun og er einn af afkastamestu 3D prenturum landsins. Hann hefur sjálfur hannað yfir 300 þrívíddarmódel, þar á meðal íslenskar kirkjur, vita og fjölmörg önnur verkefni.
Nýlega gaf Einar einnig út bók um 3D prentun og þrívíddarhönnun þar sem hann miðlar reynslu sinni, vinnuaðferðum og helstu grunnatriðum fyrir þá sem vilja læra fagið.
Hvað fylgir?
Allur efniskostnaður innifalinn, persónuleg leiðsögn frá kennara og tækifæri til að vinna að eigin hugmyndum og verkefnum
• Aðgangur að prenturum og hugbúnaði
• Kennslubók – 3D Prentun fyrir byrjendur
• Aðgangur að kennslumyndböndum
Verð
35.000 kr. á mann veittur er 10% systkynaafsláttur.
Hvar og hvenær?
10 - 14 ágúst 2026
mánudag til föstudags kl. 10:00–14:00
Fjörheimar - Hafnargata 88
Skráning og nánari upplýsingar:
[email protected]
eða Facebook skilaboð (PM)
Takmarkaður sætafjöldi – skráðu þig tímanlega!
Advertisement
Event venue
Fjörheimar félagsmiðstöð, Hafnargata 88, 230 Reykjanesbær, Ísland, Keflavik, Iceland
Tickets
Discover more events by tag
Workshops in KeflavikEducation in KeflavikKids in KeflavikTechnology in KeflavikComputer-aided-design in KeflavikRobotics in KeflavikDiy in KeflavikCrafts in Keflavik