30 ára brúðkaupsafmæli Tvíhöfða

Fri, 27 Nov, 2026 at 09:00 pm UTC+00:00

Eldborg, Harpa, Austurbakka 2 | Reykjavík

Tv\u00edh\u00f6f\u00f0i
Publisher/HostTvíhöfði
30 \u00e1ra br\u00fa\u00f0kaupsafm\u00e6li Tv\u00edh\u00f6f\u00f0a
Advertisement
Þeir Sigurjón Kjartansson og Jón Gnarr hafa glatt margar kynslóðir íslendinga á sínum langa samstarfsferli. Þeir færðu okkur Fóstbræður og ýmislegt annað hágæða sjónvarpsefni. En samstarf þeirra í útvarpi er ekki síður einstakt. Útvarpsþátturinn Tvíhöfði er ekki bara þáttur heldur upplifun sem á engan sinn líka hér á landi eða í nágrannaríkjum okkar. Mánuðum saman héldu þeir Nígeríska svikahrappinum Mustapha á snakki og öll þjóðin fylgdist með þegar Woody Allen, Dr. Frankenstein og Harrison Ford ræddu við Mustapha sem var á leið til Íslands til að taka við Harrison-Allen fiskvinnslunni. Enginn sem hlýddi á þá félaga lýsa úrslitaleik í HM mun gleyma þeirri upplifun. Eða þá framhaldsleikritunum Hótel Volkswagen og Grafræningjarnir. Geisladiskar Tvíhöfða hafa fyrir löngu fest sig í sessi enda tvímælalaust eitthvað það allra besta gamanefni sem komið hefur út hér á landi. Suðu-Sigfús, umferðar-Einar, Sænski töffarinn og milljarðamæringurinn Adrian Nigelson eru fyrir löngu orðnir að þjóðargersemum. Að ógleymdum öllum þeim vinsælu lögum sem þeir hafa sent frá sér; Gefum honum von, Þriðjudagskvöld, My bitch og Dúettinn Plató svo nokkur séu nefnd. Tvíhöfði fagnar nú 30 ára samstarfsafmæli sínu. Af því tilefni hefur verið ákveðið að fagna þessum áfanga með áhorfendum á stórsýningu í Eldborgarsal Hörpu þar sem ekkert verður til sparað. Á þessu merka brúðkaupsafmæli mun Tvíhöfði flytja sín vinsælustu lög við undirleik og ásamt ástsælum tónlistarmönnum, bregða á leik, fara með gamanmál og fá til sín óvænta gesti úr sögu Tvíhöfða en leynigestur kvöldsins er enginn annar en Adrian Nigelson heitinn. Þetta er einstök kvöldstund sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.
Advertisement

Event Venue

Eldborg, Harpa, Austurbakka 2, Austurbakki 2,Reykjavík, Iceland

Tickets

Icon
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you:

More Events in Reykjavík

Winter Wonderland s\u00fdning HRF\u00cd
Fri, 27 Nov at 06:00 pm Winter Wonderland sýning HRFÍ

Fákur hestamannafélag

ANDKRISTNI MMXXVI
Thu, 17 Dec at 05:00 pm ANDKRISTNI MMXXVI

IÐNÓ

Reykjavík is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Reykjavík Events