Advertisement
Kæru Dýrfirðingar, við hlökkum til að sjá ykkur sem flest í Breiðfirðingabúð laugardaginn 18. apríl. Árshátíð og 80 ára afmæli félagsins verður fagnað með kvöldmat, góðum félagsskap og balli. Skráning er hafin, hún fer bæði fram hér https://forms.gle/MXq2PfepVbZyjHSf7 - en einnig er hægt að skrá sig með því að hafa samband við Bergþóru í síma 824-1958 eða senda póst á bergtora.vals hjá gmail.com og Berglindi Hrönn Hlynsdóttur í síma 848-0949 eða senda póst á bella8192 hjá gmail.com
Húsið opnar kl. 18:00, borðhald hefst 19:00.
Matur + ball kostar 12.000 kr. Bara ball - 5.000 kr.
Greiðist inn á reikningsnr: 0117-26-020980
Kt: 660875-0189 fyrir 11. apríl
Rúnar Kristinsson sér um matinn, veislustjóri verður Lóa Björk Björnsdóttir og minni Dýrafjarðar flytur Margrét Höskuldsdóttir.
Tónlistaratriði frá Bríeti Vögnu og Eldhúskvartettnum, og svo mun hljómsveitin Cameo frá Vestmanneyjum leika fyrir dansi. Við ætlum að syngja saman og draga út happdrættisvinninga. Það verður bar á staðnum en líka í boði að taka með sína eigin drykki.
Við hlökkum rosalega mikið til að sjá ykkur.
Þau sem vilja sitja saman mega láta okkur vita í skráningunni og við tökum frá borð.
Advertisement
Event Venue
Breiðfirðingabúð, Faxafen 14, 108 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.










