Advertisement
- ATH! Önnur sýning klukkan 14:00 komin í sölu -Miðasala á þá sýningu hér https://www.midix.is/is/jesus-kristur-supergod-aukasyning-18-apr-2026/eid/980
Kór Akraneskirkju og Kór Keflavíkurkirkju flytja í sameiningu rokksöngleikinn Jesús Kristur Súpergoð – valin lög úr þessum heimsfræga söngleik í útsetningu Arnórs Vilbergssonar og íslenskri þýðingu Karls Ágústs Úlfssonar. Upprunalega verkið er eftir Andrew Lloyd Webber og Tim Rice.
Tónleikarnir fara fram í Bíóhöllinni á Akranesi laugardaginn 18. apríl og hefjast kl. 17:00 og aukasýning klukkan 14 sama dag. Á sviði verður hátt í 100 manna kór, ásamt fjölda einsöngvara úr röðum kóranna og hljómsveitinni Postulunum.
Stjórnendur eru Arnór Vilbergsson, organisti í Keflavíkurkirkju, og Hilmar Örn Agnarsson, organisti í Akraneskirkju. Í hlutverkum Jesú og Júdasar syngja Eyþór Ingi og Stebbi Jak.
Advertisement
Event Venue
Bíóhöllin Akranesi, Vesturgata 27, 300 Akraneskaupstaður, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











