Advertisement
Ársfundur Erasmus+ 2026 hefur það að markmiði að stuðla að umræðu um stöðu færnimála á Íslandi og setja færniþróun fyrir framtíðina í forgrunn með því að kynna helstu tækifæri og árangur af Evrópusamvinnu.Gert er ráð fyrir á fundinn frá öllum sviðum menntunar, æskulýðsmála og íþrótta. Viðburðurinn hefst 12:15 með hádegisverði og síðan tekur formleg dagskrá við kl. 13:00 í hátíðarsal Tækniskólans við Háteigsveg (Sjómannaskólinn í Reykjavík).
Það er okkar von að viðburðurinn leggi sitt af mörkum til að auka þekkingu á evrópskum tækifærum, miðli niðurstöðum árangursríkra verkefna og stuðli að vönduðum umsóknum um framtíðarverkefni sem geta haft mikil, víðtæk og varanleg áhrif á færniþróun hérlendis.
Ítarleg dagskrá og skráning á ársfund Erasmus+: https://www.erasmusplus.is/frettir-og-vidburdir/frettir/taktu-daginn-fra
Erasmus+, mennta- og æskulýðsáætlun ESB ásamt tengdum stoðverkefnum, sem Rannís hýsir hér á landi, bjóða upp á fjölbreytt tækifæri til að byggja upp fagþekkingu, þróa nýjar lausnir í námi og kennslu og verkfæri til að efla, meta og miðla betur upplýsingum um færni innan evrópska menntasvæðisins.
Advertisement
Event Venue
Tækniskólinn - Háteigsvegur, Háteigsvegur 55, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











