Advertisement
Gefðu þér ljúfa stund til að núllstilla líkamann og endurnæra taugakerfið. Mjúkar hreyfingar og endurnærandi bandvefslosun fyrir svæði Vagustaugar.Regína verður með bandvefslosun:
Með því að virkja Vagustaugina styrkjum við taugakerfið og það skapast jafnvægi í orkubúskap líkamans og meðvitund okkar um líkamann eykst, sjálfsvitund eflist og styrkist. Notum mjúka bolta og hreyfingar með djúpöndun til þess að nudda svæði Vagustaugar.
ATH! við nuddum magasvæðið og brjóstkassa því er mælt með að borða ekki mikið fyrir tímann.
Kristín leiðir svo slökun með mjúkri tónheilun.
Tónheilun með kristalsskálum er djúp slökunar- og endurnæringarupplifun þar sem hljóð og titringur vinna beint með taugakerfinu, orkuflæðinu og líkamanum í heild sinni.
Kristalsskálarnar eru gerðar úr hreinu kvars og gefa frá sér tær, hreinsandi hljóð sem fylla rýmið af mýkt og kyrrð. Þegar slegið er á skálarnar myndast titringur sem berst í gegnum loftið – og í gegnum líkama okkar. Vatnið í frumunum svarar þessum bylgjum og líkaminn fær leyfi til að slaka á á djúpu stigi.
Í tónheiluninni þarftu ekkert að gera. Þú leggst niður, lokar augunum og leyfir hljóðinu að bera þig.
✨ Tónarnir geta:
róað ofvirkt taugakerfi
minnkað streitu og kvíða
dýpkað öndun
aukið innri kyrrð
opnað fyrir innsæi og skýrleika
Regína og Kristín leiða stundina saman
Staðsetning: Bíldshöfði 16, 2 hæð
Verð 4500 kr
Skráning í gegnum skilaboð eða [email protected]
Advertisement
Event Venue
Yogasmiðjan/Heilsurækt, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











