Leifur fagnar 40! Afmæli og Tónleikar @ White Lotus.

Sat, 07 Mar, 2026 at 08:00 pm to Sun, 08 Mar, 2026 at 01:30 am UTC+00:00

White Lotus Venue - Iceland | Reykjavík

Leifur Eir\u00edksson
Publisher/HostLeifur Eiríksson
Leifur fagnar 40! Afm\u00e6li og T\u00f3nleikar @ White Lotus.
Advertisement
Haldið’ekki að kallinn hafi náð 40 ára aldri. Svei mér þá, hverjum hefði dottið það í hug, miðað við fífldirfskuna og vafasamar lífsstíls ákvarðanir. En hann tórir enn, Leifur Eiríksson á víst enn sín síðustu lönd ókönnuð.
Og hann langar að halda uppá áfangan. Fagna sjálfum sér. Gat nú verið, hefur alltaf verið svolítið góður með sig sá at arna.
Og hvað er meira viðeigandi, fyrir mann sem hefur nánast helgað líf sitt tónlist, en að kallinn sjálfur stígi á stokk, syngi og dansi fyrir ykkur með sín sérstöku mannapalæti.
Haeldénú!
Og hann hefur þá ósvífni að ætlast til þess að gestirnir sínir borgi fyrir herlegheitin.
Hvusslags?!
Hann hefur þó haft fyrir því að lokka til sín tvær aðrar saklausar sálir til að serenaða fyrir mannskapinn svo það sé nú áreiðanlega eitthvað kjöt á þessum beinum, jafnvel smá fita meððí.
Vitað skal þá, að veislu skal halda manninum til höfuðs, ég meina heiðurs, þann 7. mars næstkomandi í hinum Hvíta Lótus, neðst á stræti bankanna, enda kauði þekktur fyrir að banka á hinar ýmsu dyr gegnum tíðina.
Það verður sungið og hlegið, en aðalega ætlar hann þó sjálfur að syngja og vænast áheyrnar í einhverskonar tilraun til að réttlæta í hæsta máta furðulega framgengni undanfarna áratugi.
Hleypt verður inn í salinn skömmu uppúr kvöldmat, um 8 leytið, og hefjast tón og sjónarspil nokkuð stuttlega eftir það.
Fram koma:
Unnur Andrea Einarsdóttir í dulargervinu: Apex Anima
Arnljótur Sigurðsson í haminum: Kraftgalli
og auðvitað Ljósvaki sjálfur með þeim stælum sem honum ævinlega fylgja.
Heyrst hefur að hinn svakalegi Svaki ætli að prófa ýmsa nýjunga á tilraunardýrum sínum það kvöldið, bæði í hljóði og sjón.
En óttist ei, dyrunum verður ekki læst að utan ef ske kynni að herlegheitin falli ekki öllum flónum og fljóðum til geðs.
Eftir að tónleikum lýkur býðst gestum að henda nokkrum fúkyrðum og skömmum, jafnvel fingurkoss, að kallinum áður en þau yfirgefa húsnæðið eitthvað uppúr miðnætti til að gera upp fyrir fyrri skuldarsakir. Það verður enginn skífuþeytir þannig að aðdáendum og óvinum er óhætt að leggja á ráðin í næði vel eftir að látunum lægir.
Ýmsar fljótandi veigar til að liðka raddböndin verður hægt að klófesta af hinum Hvíta Lótus í skipti fyrir almennan gjaldeyri.
Hlakka til að sjá ykkur elsku vinir og fagna 40 jarðhringjum!
Með þökk og ástarkveðju,
Leifur ❤️
TLDR:
Leifur er að verða fertugur og heldur tónleika með góðum gestum.
Miðaverð er 3.000 kr sem fer í að greiða sal, ágóði dreifist á listamenninna.
Leifur afþakkar gjafir en þiggur fjárstyrki til frekari tónlistar viðleitni, helst vill hann þó bara að þú kaupir miða handa sjálfu þér á tónleika með sjálfum sér í afmælisgjöf.
Kennitala og reikningsnúmer verða uppgefin á staðnum til að millifæra fyrir styrktaraðila.
🔥🔥🔥
I am aware this text is completely lost on English speakers.
Basically, Leifur is turning 40, and he would love for you to come and celebrate with him.
He’s renting a venue and has 2 other artists on the line-up with him, Kraftgalli and Apex Anima. If you don’t know them, they are super cool and fun, and you’ll enjoy it.
I know, paying admission for a birthday party is slightly unusual. It’s a spur-of-the-moment decision, and he hadn’t saved any money for it, so he would very much appreciate it as a birthday gift if you bought a ticket to his concert to cover the venue fee and such.
To be fair, it’s the first time he’s ever asked for tickets, so you’ve been very fortunate to enjoy his talents for free so far.
Well, I guess he’s growing up or something, finally deciding to take this music thing seriously.
The doors open at 20:00, and the first concert is at 20:30.
Live music will continue until midnight, with short breaks between acts.
After midnight, there will be time and space to mingle and enjoy.
No DJ, so you can have conversations with your friends at a reasonable volume after the concert.
Hope to see you there to celebrate with me!
With love,
Leifur ❤️
Advertisement

Event Venue

White Lotus Venue - Iceland, Bankastræti 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Tickets

Icon
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you:

More Events in Reykjavík

Krakkakl\u00fabburinn Krummi \u2013 H\u00fas og heimar \ud83d\uded6
Sat, 07 Mar at 02:00 pm Krakkaklúbburinn Krummi – Hús og heimar 🛖

Fríkirkjuvegur 7, 101 Reykjavík, Iceland

BISTRO BOY + VINIR  \u00cd LUCKY
Sat, 07 Mar at 03:00 pm BISTRO BOY + VINIR Í LUCKY

Lucky Records - Reykjavik

T\u00f3nlist \u00far kvikmyndum Pedro Almod\u00f3var
Sat, 07 Mar at 04:00 pm Tónlist úr kvikmyndum Pedro Almodóvar

Grundarstígur 10, 101 Reykjavík, Iceland

Herrakv\u00f6ld Leiknis 2026
Sat, 07 Mar at 06:30 pm Herrakvöld Leiknis 2026

Leiknisvöllur

Hillbilly kvennakv\u00f6ld F\u00e1ks 7.mars 2026
Sat, 07 Mar at 07:00 pm Hillbilly kvennakvöld Fáks 7.mars 2026

Fákur hestamannafélag

G\u00f3ugle\u00f0i 2026
Sat, 07 Mar at 07:30 pm Góugleði 2026

Brúarás - Við Hvítá

Sir\u0101t \u00ed B\u00ed\u00f3 Parad\u00eds!
Sat, 07 Mar at 09:00 pm Sirāt í Bíó Paradís!

Hverfisgata 54, 101 Reykjavík, Iceland

Heilunarn\u00e1mskei\u00f0 me\u00f0 Ragnhildi Sumarli\u00f0ad\u00f3ttur
Sat, 07 Mar at 10:00 pm Heilunarnámskeið með Ragnhildi Sumarliðadóttur

Skipholt 50d, 105 Reykjavík, Iceland

Dimmalimm
Sun, 08 Mar at 01:00 pm Dimmalimm

12 Tjarnargata, 101 Reykjavík, Iceland

Milli handa, l\u00edkama og landa \/ Between Hands, Bodies, and Land:  a creative workshop for families
Sun, 08 Mar at 01:00 pm Milli handa, líkama og landa / Between Hands, Bodies, and Land: a creative workshop for families

Borgarbókasafnið Grófinni - The Reykjavik City Library Grófin

Lei\u00f0s\u00f6gn listamanna | Snertifletir \/ Artists\u2019 Tour | Affinities of Form
Sun, 08 Mar at 02:00 pm Leiðsögn listamanna | Snertifletir / Artists’ Tour | Affinities of Form

Fríkirkjuvegur 7, 101 Reykjavík, Iceland

Vonarsprotar: pl\u00f6ntum og syngjum! \/ Hopeful Seedlings: Planting Singalong!
Sun, 08 Mar at 02:00 pm Vonarsprotar: plöntum og syngjum! / Hopeful Seedlings: Planting Singalong!

Borgarbókasafnið Grófinni - The Reykjavik City Library Grófin

Reykjavík is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Reykjavík Events