Advertisement
Athugið að nú er orðið uppselt á frumsýningu, en miðar eru til á aðrar sýningar.Verið velkomin á sýningu Söngskólans í Reykjavík á söngleiknum Öskubusku!
Þessi frábæra útgáfa sögunnar var síðast var sett á svið árið 1978 í Þjóðleikhúsinu, með grípandi tónlist eftir Sigurð Rúnar Jónsson (Didda fiðlu) og stórskemmtilegum söngtextum eftir Þórarin Eldjárn.
Mikill húmor og gleði einkennir uppsetningu Söngskólans sem verður frumsýnd í Tjarnarbíói 21. mars og hæfileikar nemenda sem taka þátt í sýningunni fá að skína skært.
Einhverjir muna eflaust eftir vinsælli plötu með uppfærslu Þjóðleikhússins. Margir af okkar dáðustu leikurum voru þar í hlutverkum, svo sem Edda Þórarinsdóttir, Árni Tryggvason, Bríet Héðinsdóttir, Þórhallur Sigurðsson, Sigríður Þorvaldsdóttir og Sigurður Sigurjónsson.
Söngleikurinn byggir á kvikmynd Jewgeni Schwarz um Öskubusku en sviðsgerð og þýðing er eftir Eyvind Erlendsson. Í uppsetningu Söngskólans í Reykjavík er handritið endurunnið af Þórunni Lárusdóttur.
Allir aldurshópar eru velkomnir á sýninguna. Lengd: 1 klukkustund og 50 mínútur með hléi. Miðasala á Tix.
Mikil spenna er fyrir uppsetningunni, bæði hjá nemendum og kennurum.
Hlutverkaskipan:
Öskubuska: Hanna Tara Björnsdóttir
Kóngur: Þrándur Ingvarsson
Prins: Sigurpáll Jónar Sigurðarson
Stjúpa: María Thelma Smáradóttir
Maríanna og varðmaður: Dagbjört Ósk Jóhannsdóttir
Anna, samkvæmisdansmálaráðherra og varðmaður: Sara Líf Sigurjónsdóttir
Dísin: Olga María Rúnarsdóttir
Lærisveinn og skógarvörður: Sigurður Matthías Sigurðarson
Foringi: Mikael Ólafsson
Þjónn og galdrakarl: Aþena Helgadóttir
Hermaður o.fl.: Jónína St. Gyðudóttir
Hermaður o.fl.: Saga Karolin Szabó
Nemendur úr Ungdeild Söngskólans í Reykjavík sem taka þátt í sýningunni eru:
Elín Katrín Þórlindsdóttir
Freyja Linnea Einarsdóttir
Harriet Selma Baldursdóttir
Katalija Strzałkowska
Lísa Vésteinsdóttir Solís
Mia Briem Paraskevopoulou
Orri Hallfríðar Þórisson
Petra Freyja Baldursdóttir
Listrænir stjórnendur:
Leikstjóri: Þórunn Lárusdóttir
Tónlistarstjóri og píanóleikari: Kjartan Valdemarsson
Deildarstjóri og söngþjálfari: Valgerður G. Guðnadóttir
Búningar og leikgervi: Valgerður G. Guðnadóttir
Sviðshönnun: Þórunn Lárusdóttir
Kjóll Öskubusku er hannaður og saumaður af Hönnu Töru Björnsdóttur
Sviðshreyfingar: Þórunn Lárusdóttir
Aðstoð við sviðshreyfingar: Katla Petersen
Hljóð: Þórður Gunnar Þorvaldsson
Ljós: Aron Martin Ásgerðarson
Hljóðfæraleikur á upptöku: Jón Sigurðsson, Manuela Wiesler, Pétur Þorvaldsson, Sigurður Rúnar Jónsson, Sigurður Karlsson og Viðar Alfreðsson.
Frumsýning 21. mars 2026 í Tjarnarbíói
Skólastjóri og framkvæmdastjóri sýningar: Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir
Hönnun á kynningarefni: Fugl á hugarflugi (Ingi Vífill Guðmundsson)
Ljósmyndir: Francisco Javier Jáuregui
Söngleikjadeild Söngskólans í Reykjavík
Valgerður G. Guðnadóttir, deildarstjóri
Þórunn Lárusdóttir, leiklist
Kjartan Valdemarsson, píanóleikari
Ungdeild Söngskólans í Reykjavík
Harpa Harðardóttir, deildarstjóri
Sibylle Köll, deildarstjóri
Einar Bjartur Egilsson, píanóleikari
Kristín R. Sigurðardóttir, kennari yngstu deildar
Sérstakar þakkir
Sigurður Rúnar Jónsson
Nýi tónlistarskólinn
Sigurður Sævarsson
Landsvirkjun
Óperan
Snorri Petersen
Hugleikur
Þórunn Guðmundsdóttir
Messíana Tómasdóttir
Íris Sveinsdóttir
Bragi Jónsson
Þessi útgáfa af Öskubusku var frumsýnd árið 1978 í Þjóðleikhúsinu. Tónlistin úr sýningunni var gefin út á plötu í kjölfarið. Hljóðfæraleikurinn á plötunni er undirleikur þessarar sýningar.
Söngskólinn í Reykjavík hefur verið starfandi frá haustinu 1973 og hefur útskrifað fjölmarga söngvara.
Inntökupróf fyrir Söngleikjadeild, Ungdeild, Grunndeild, Miðdeild og Framhaldsdeild Söngskólans í Reykjavík fyrir skólaárið 2026-2027 fara fram í maí 2026. Umsóknir eru opnar á vefsíðu skólans: songskolinn.is.
Viltu ganga í Styrktarfélag Söngskólans í Reykjavík? Sendu okkur þá endilega póst í netfangið [email protected]
Advertisement
Event Venue
Tjarnarbíó (Reykjavík, Iceland), Tjarnargata 12, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











