Advertisement
Laugardaginn 21. mars frá kl. 11 - 16 verður Heilasmiðja í Höfuðstöðinni í samstarfi við sálfræðideild Háskóla Reykjavíkur í tilefni alþjóðlegrar heilaviku.Þar mun María Kristín Jónsdóttir, taugasálfræðingur og prófessor í sálfræði, ásamt tveimur sálfræðinemum við HR, svara spurningum um heilann á meðan gestir skapa sitt eigið heilalíkan. Á staðnum verða líkön af heilanum og með ýmsum efnivið gerir hver og einn sitt eigið verk.
Allir taka heilalíkanið sitt með heim og fá heilastrokleður að gjöf.
Markmið alþjóðlegu heilavikunnar er að efla áhuga og skilning almennings á heilavísindum og fræða um heilann og heilaheilsu. Heilavikan var fyrst haldin í Bandaríkjunum árið 1996 og er nú haldin árlega í marsmánuði víða um heim.
Verð per þátttakenda er 1.290kr.
Hentar öllum aldurshópum.
Skráning óþörf.
Kaffihúsið, útisvæðið og sýningin Chromo Sapiens verða á sínum stað.
Höfuðstöðin er lista- og menningarhús í gömlu kartöflugeymslunum í Elliðaárdalnum. Þar má finna kaffihús og bar með sólpalli og útileikföngum, gjafavöruverslun og sýninguna Chromo Sapiens eftir Hrafnhildi Arnardóttur / Shoplifter staðsetta til frambúðar. Opið er virka daga frá kl. 12 - 18 og helgar frá kl. 11 - 17. Hægt er að leigja út Höfuðstöðina fyrir einkaviðburði og það eru skemmtilegar listasmiðjur fyrir börn og fjölskyldur alla laugardaga frá kl. 11 - 17 og á völdum frídögum.
www.hofudstodin.com
www.instagram.com/hofudstodin
www.facebook.com/hofudstodin
--
Join us on Saturday, March 21st from 11 - 4 pm, for our Brain Workshop at Höfuðstöðin in collaboration with the Department of Psychology at Reykjavík University for International Brain Awareness Week.
There, María Kristín Jónsdóttir, neuropsychologist and professor of psychology, along with two psychology students at RU, will answer questions about the brain while guests create their own brain model. There will be models of the brain and various materials on site, where each person can create their own work.
Everyone will take their brain model home and receive a brain eraser as a gift.
The goal of International Brain Awareness Week is to promote public interest and understanding of brain science and to educate about the brain and brain health. Brain Awareness Week was first held in the United States in 1996 and is now held annually in March around the world.
Price per participation is 1.290kr.
All ages welcome.
Registration is not required.
The café, outdoor area and the installation Chromo Sapiens will be open as usual.
Höfuðstöðin is an art and culture center in the old potato barracks in Elliðaárdalur. There you will find a café and bar with a patio and outdoor toys, a gift shop and the installation Chromo Sapiens by Hrafnhildur Arnardóttir / Shoplifter on permanent display. It is open weekdays from 12pm - 18pm and weekends from 11am - 17pm. Höfuðstöðin can be rented for private events and there are art workshops every Saturday from 11am - 17pm and on selected holidays.
www.hofudstodin.com
www.instagram.com/hofudstodin
www.facebook.com/hofudstodin
Advertisement
Event Venue
Rafstöðvarvegur 1a, 110 Reykjavík, Iceland, Rafstöðvarvegur 1, 110 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.










