Advertisement
Reykjavík Folk Festival snýr aftur, annað árið í röð, dagana 19.-21. mars 2026 næstkomandi. Hátíðin er sett upp að alþjóðlegri fyrirmynd þar sem spilagleðin er í forgrunni og órafmögnuð hljóðfæri eru í aðalhlutverki. Fyrsta hátíðin fór fram með þetta að leiðarljósi árið 2010. Forsvarsmaður, hugmyndasmiður, helsti hönnuður og fyrsti framkvæmdastjóri Reykjavik Folk Festival var Ólafur Þórðarson, ástsæll tónlistarmaður í Ríó Tríó og fleiri hljómsveitum auk þess að vera bakhjarl fjöldamargra tónlistarmanna.Þjóðlagatónlist (e. folk music) hefur stundum verið skilgreind sem tónlist eða tónlistaráhrif sem rekja uppruna sinn til hins venjulega alþýðumanns, tónlistararf sem borist hefur mann frá manni, kynslóð frá kynslóð. Oftar en ekki má rekja þetta til þess að vinir eða fjölskyldan hafa komið saman, sungið og spilað af fingrum fram. Réttara væri því kannski að tala um alþýðutónlist.
Aðaldagskrá Reykjavík Folk Festival fer fram í Iðnó föstudaginn 20. mars og laugardaginn 21. mars.
Opnunarkvöld og setning hátíðarinnar fer fram í Tónlistarmiðstöð og Ægi 101 fimmtudaginn 19. mars ásamt frekari hliðardagskrá í Ráðhúsi Reykjavíkur og Iðnó hina dagana.
Nánari upplýsingar á
facebook.com/reykjavikfolkfestival
instagram.com/reykjavikfolkfestival
///
Föstudagur 20. mars
- Ráðhús Reykjavíkur - ókeypis aðgangur
kl. 16:00 - MÍT Showcase nemendatónleikar
kl. 17:00 - Opnir tónleikar
- Iðnó -
kl. 19:00 - húsið opnar
kl. 20:00 - Svavar Knútur
kl. 21:00 - Umbra Ensemble
kl. 22:00 - Óður til íslenskrar alþýðutónlistar (listafólk kvöldsins ásamt Snorra Helgasyni og Brek)
Advertisement
Event Venue
IÐNÓ, Vonarstræti 3, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.










