Advertisement
Kyrrðarjóga þar sem kyrrðin er öruggur staður og þú gefur líkama og sál tækifæri til þess að upplifa endurheimt og heilun á eigin hraða og forsendum.Aðferð I am yoga nidra, þar vinnur vitundi og líkaminn hvílir.
Með sjálfsmildi og kærleika gefur þú þér leyfi til þess að sleppa því sem ekki er nærandi í þínu lífi opnar fyrir það að móttaka allt það sem nærir þig.
Tímarnir eru þannig byggðir upp að þú kemur inn í kyrrlátan sal þar sem heilunarmöntrur bjóða þig velkomin, kemur þér fyrir á dýnunni og Kristín leiðir þig í jóga nidra ferðalag sem er í ca 45 til 50 mín kemur svo mjúklega til baka og hefur rými til að upplifa, deila og eða spyrja um upplifun eftir tíman.
í öllum tímum eru falleg spil með innblæstri löggð á hverja dýnu fyrir sig og það er magnað hvað þau eru sannspá.
Kristín er jógakennari útskrifuð úr námi hjá Auði Bjarnadóttur Jógasetrinu, einnig er hún I am yoga nidra kennari og yoga therapisti útskrifuð lærði hjá Kamini Desai.
Auk þess hefur hún unnið sem meðferðaraðili til fjölda ára.
Kristín nálgast fólk af kærleika og á valdeflandi hátt það er ástríða hennar að sjá fólk blómstra.
Námskeiðið er kennt á föstudögum kl 17.30 og því tilvalið til að skilja vinnuvikuna eftir og hefja helgina núlstillt/ur.
fyrsti tími er föstudaginn 20 mars kl17.30 og sá síðasti 17. apríl
Staðsetning yogasmiðjan heilsurækt Bíldshöfða 16, 2 hæð.
Verð 16.000 kr
Iðkenndur hafa aðgang að opnum tímum Yogasmiðjunnar á meðan á námskeiði stendur
Flest stéttafélög styrkja sitt fólk á þetta námskeið
Advertisement
Event Venue
Yogasmiðjan/Heilsurækt, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











