Manifestation með Hugleiðslu Tónferðalagi & Hjartaopnandi Cacao💫

Thu Mar 19 2026 at 07:30 pm to 09:00 pm UTC+00:00

REYR Studio | Reykjavík

Lif\u00f0u betur me\u00f0 \u00fe\u00e9r
Publisher/HostLifðu betur með þér
Manifestation me\u00f0 Huglei\u00f0slu T\u00f3nfer\u00f0alagi & Hjartaopnandi Cacao\ud83d\udcab
Advertisement
Komdu að manifesta með okkur þar sem við leiðum þig áfram með dáleiðandi tónferðalagi og könnum kraft tónanna, hjartans og ásetningsins inn í heim drauma og markmiða þinna. Þar sem við hjálpum þér að finna meiri skýrleika og hvað það er sem þú vilt manifesta inn í líf þitt.
Saman fléttum við ásetning, manifestation, hugleiðslu, tónheilun og meðvitaða sköpun til að opna á flæði orkunnar og leyfa þannig draumum þínum að taka á sig form í veruleikanum.
Stundin hefst á Hjartaopnandi Cacao 100% hreinu súkkulaði frá Perú ❤
Leyfðu þér að stíga inn í heilagt rými með okkur þar sem hljóð og orka sameinast í töfrandi upplifun. Í þessari tónferð verður þú leitt í gegnum mjúka tónheilun sem hjálpar þér að tengjast hjarta þínu, djúpum draumum og undirmeðvitund svo hún geti aðlagast nýjum áformum og orku framtíðar þinnar.
Við notum flæði og tíðni tónanna til að opna á kraft orkunnar og vekja sköpunarkraft þinn til lífs. Með leiðbeinandi hljóðum, ljósi og nærandi orku sköpum við rými fyrir losun, endurnýjun og innri frið til að öðlast meiri skýrleika og flæði inn í líf þitt.
Þegar hjartað opnast og hugurinn kemst í þeta ástand verður undirmeðvitundin móttækilegri og þú getur stillt þig inn á nýja drauma, nýjar leiðir og nýja veröld sem þig langar að skapa.
Þú þarft ekki að vera með neitt á hreinu þegar þú kemur, bara leyfa stundinni að leiða þig áfram í átt að þínu innsæi, meðvitund og manifestation. Láttu tónana og orkuna leiða þig inn í nýja tíðni, nýtt jafnvægi og nýja byrjun.
Komdu og vertu með okkur í opnandi og flæðandi orku 💫 þar sem við aðstoðum þig við að koma draumum þínum í birtingu.
Við hlökkum til að vera með þér í Reyr Studio Fiskislóð 31B, kærleikur, Kolbrún og Danni
Verð: 7500 kr
Þú tryggir þér pláss með því að skrá þig og borga með linknum í "tickets"
Advertisement

Event Venue & Nearby Stays

REYR Studio, Fiskislóð 31, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland

Tickets
Icon
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.

Ask AI if this event suits you:

More Events in Reykjavík

Krishna Das Workshop
Wed, 18 Mar at 07:30 pm Krishna Das Workshop

Skeifan 7,2nd and 3rd floor, 108 Reykjavík, Iceland

Dara \u00d3 Briain Re:Creation
Fri, 20 Mar at 08:00 pm Dara Ó Briain Re:Creation

Háskólabíó

Pink Floyd: The Wall - F\u00f6studagspart\u00eds\u00fdning!
Fri, 20 Mar at 09:00 pm Pink Floyd: The Wall - Föstudagspartísýning!

Hverfisgata 54, 101 Reykjavík, Iceland

Krakkakl\u00fabburinn Krummi \u2013 Sk\u00falpt\u00farsmi\u00f0ja \ud83d\uddff
Sat, 21 Mar at 02:00 pm Krakkaklúbburinn Krummi – Skúlptúrsmiðja 🗿

Listasafn Einars Jónssonar / The Einar Jónsson Sculpture Museum

\u00d3mur steppunar \/ Echos of the Steppe
Sat, 21 Mar at 04:00 pm Ómur steppunar / Echos of the Steppe

Grundarstígur 10, 101 Reykjavík, Iceland

PINK FLOYD \u00ed 60 \u00e1r \u00ed Eldborg H\u00f6rpu
Sat, 21 Mar at 09:00 pm PINK FLOYD í 60 ár í Eldborg Hörpu

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre

Reykjavík is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Reykjavík Events