Vilhjálmur Vilhjálmsson 80 ára-örfá sæti laus!

Fri Apr 11 2025 at 08:00 pm to 10:30 pm UTC+00:00

Harpa Concert Hall | Reykjavík

RIGG - vi\u00f0bur\u00f0ir
Publisher/HostRIGG - viðburðir
Vilhj\u00e1lmur Vilhj\u00e1lmsson 80 \u00e1ra-\u00f6rf\u00e1 s\u00e6ti laus!
Advertisement
Söngvarinn ástsæli Vilhjálmur Vilhjálmsson fæddist 11. apríl árið 1945 og hefði því orðið áttræður í apríl nk. Fólk man ljúfa tenórrödd þessa vinsæla dægurlagasöngvara og það sem meira er, ungt fólk sem fætt er löngu eftir fráfall Vilhjálms dáir lögin sem hann gerði að sínum með persónulegum og áreynslulausum söngstíl. Mörg lög lifa enn í minningunni hátt í fimmtíu árum eftir að þau komu út, svo sem Lítill drengur, Bíddu pabbi, Þú átt mig ein og Söknuður svo að örfá séu nefnd. Í tilefni af fæðingarafmæli söngvarans verða einstakir afmælistónleikar haldnir í Eldborg föstudaginn 11. apríl.
Friðrik Ómar syngur lög Vilhjálms ásamt stórhljómsveit undir stjórn Karls. O. Olgeirssonar. Björt og fögur söngrödd Friðriks minnir óneitanlega á áferð raddar Vilhjálms.
Um Vilhjálm Vilhjálmsson Vilhjálmur hóf söngferil sinn með hljómsveitinni Busabandinu árið 1961 þegar hann var við nám við Menntaskólann á Akureyri. Fram að þeim tíma hafði hann ekki mikla trú á tónlistarhæfileikum sínum og stefndi ekki á frama á því sviði. Vilhjálmur kom þó úr mikilli tónlistarfjölskyldu. Hann var yngstur fimm systkina og ólst upp á Merkinesi í Höfnum á Suðurnesjum. Faðir hans, Vilhjálmur Hinrik Ívarsson, var þekktur harmonikuleikari og söngmaður en eldri systir hans var, eins og alþjóð veit, söngkonan Elly Vilhjálms. Vilhjálmur fylgdi fyrrverandi meðlimi úr Busabandinu, Þorvaldi Halldórssyni, og fór að syngja með Hljómsveit Ingimars Eydal árið 1965, um svipað leyti og hann lauk menntaskólanámi. Hann söng inn á tvær plötur með hljómsveitinni og vann strax hylli þjóðarinnar með lögum eins og Litla sæta ljúfan góða og Vor í Vaglaskógi. Vilhjálmur hætti í hljómsveit Ingimars Eydal og fluttist til Reykjavíkur til að hefja tannlæknanám. Hann sagði þó ekki skilið við tónlistina og vann fyrir sér með því að syngja með Hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar sem lék á veitingahúsinu Röðli öll kvöld vikunnar.
Vilhjálmur hætti tannlæknanáminu eftir tvö ár og helgaði sig alfarið tónlistinni. Vilhjálmur söng inn á fjórar plötur með systur sinni Elly, sú fyrsta, Systkinin Vilhjálmur og Elly syngja saman, kom út árið 1969. Allar plöturnar nutu mikilla vinsælda og varla er til sá Íslendingur sem ekki getur raulað með jólaplötu þeirra systkina. Eftir að hafa lokið flugnámi árið 1970 flutti Vilhjálmur til Lúxemborgar en kom þó reglulega heim í frí og söng inn á plötur. Hann gaf út sólóplötu árið 1972 sem sló rækilega í gegn. Platan innihélt vinsæl lög eins og Bíddu pabbi og Ó mín kæra vina. Árið 1976 kom svo út platan Með sínu nefi þar sem Vilhjálmur söng lög sem hann lét semja við ljóð Kristjáns frá Djúpalæk. Ári síðar kom svo út platan Hana-nú sem geymdi meðal annarra lögin Sökunuður og Þú att mig ein. Söngferill Vilhjálms spannaði þó ekki langan tíma, en hann lést sem kunnugt er langt fyrir aldur fram í bílslysi í Lúxemborg árið 1978. Vilhjálmur lét eftir sig þrjú börn.
Advertisement

Event Venue & Nearby Stays

Harpa Concert Hall, Epal - Harpa og Laugavegur, 101 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland

Tickets

Sharing is Caring:

More Events in Reykjavík

R\u00f3sa-dekurgufa
Fri, 11 Apr, 2025 at 05:00 pm Rósa-dekurgufa

Skerjafjörður

Innr\u00fdmi - s\u00fdning Sigur\u00f0ar Gu\u00f0j\u00f3nssonar
Fri, 11 Apr, 2025 at 05:00 pm Innrými - sýning Sigurðar Guðjónssonar

Hallgrímstorg 3, 101 Reykjavík, Iceland

Panel: Music in Film - Purpose and Process
Fri, 11 Apr, 2025 at 06:00 pm Panel: Music in Film - Purpose and Process

Austurstræti 5, 101 Reykjavíkurborg, Ísland

Eonian - Lokaverkefni 3.\u00e1rs Listdanssk\u00f3la \u00cdslands
Fri, 11 Apr, 2025 at 06:30 pm Eonian - Lokaverkefni 3.árs Listdansskóla Íslands

Menntaskólinn við Hamrahlíð

Gusumeistaran\u00e1m 11 til 13 apr\u00edl \ud83c\udf38
Fri, 11 Apr, 2025 at 07:00 pm Gusumeistaranám 11 til 13 apríl 🌸

Grímsstaðavör

T\u00f3nleikar S\u00f6ngbr\u00e6\u00f0ra \u00ed Dalab\u00fa\u00f0
Fri, 11 Apr, 2025 at 08:30 pm Tónleikar Söngbræðra í Dalabúð

Dalabúð

An Evening of Song & Connection with Sveinbj\u00f6rn
Fri, 11 Apr, 2025 at 08:30 pm An Evening of Song & Connection with Sveinbjörn

Kornhlaðan

Event Horizon - F\u00f6studagspart\u00eds\u00fdning!
Fri, 11 Apr, 2025 at 09:00 pm Event Horizon - Föstudagspartísýning!

Hverfisgata 54, 101 Reykjavík, Iceland

\u00c6vint\u00fdrah\u00f6llin \u00ed H\u00fasd\u00fdragar\u00f0inum
Sat, 12 Apr, 2025 at 10:30 am Ævintýrahöllin í Húsdýragarðinum

Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn/Reykjavik Family Park and Zoo

Barnamenningarh\u00e1t\u00ed\u00f0: Listasmi\u00f0ja um pl\u00f6ntur \u00ed \u00fatr\u00fdmingarh\u00e6ttu
Sat, 12 Apr, 2025 at 11:00 am Barnamenningarhátíð: Listasmiðja um plöntur í útrýmingarhættu

Grasagarður Reykjavíkur

Reykjavík is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Reykjavík Events