Advertisement
Íslenska vatnafræðinefndin, LIFE Icewater verkefnið og Orkuveitan standa fyrir viðburðinum Vatn og kynjajafnrétti í Elliðaárstöð föstudaginn 20. mars kl. 13:30-15:30. Fundurinn er haldinn í tilefni af alþjóðlegum degi vatnsins #WorldWaterDay sem haldinn er hátíðlegur þann 22. mars ár hvert. Í ár er þema dagsins „Water and Gender“.Dagskrá fundarins:
Vatnsverkefni í tvíhliða þróunarsamvinnu Íslands
o Pálína B. Matthíasdóttir, deildarstjóri Þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins
Gender Barriers in Water Utilities and the Path Forward in Developing Countries
o Esther Chinecherem George, nemandi við Jafnréttisskóla GRÓ, Háskóla Íslands
Leikfang ríkra karla -allt sem þú vissir ekki um vatnsveitur og tækniþróun
o Stefán Pálsson, sagnfræðingur
Fundarstóri:
Eiríkur Hjálmarsson, sjálfbærnistjóri Orkuveitunnar
Það er óskandi að sem flest sjái sér fært að koma í Elliðaárstöð og fagna deginum með okkur. Til að meta magn kaffiveitinga eru þátttakendur beðnir um að skrá sig í gegnum meðfylgjandi hlekk https://forms.office.com/e/05cbyd23CF
Frekari upplýsingar um alþjóðlegan dag vatns (World Water Day) má finna hér https://www.unwater.org/our-work/world-water-day
Advertisement
Event Venue
Elliðaárstöð, Rafstöðvarvegur 6, 110 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.









