Upprásin 11. febrúar - KUSK & Óviti, Sigrún og CHÖGMA

Tue Feb 11 2025 at 08:00 pm UTC+00:00

Austurbakki 2, 101 Reykjavík, Iceland | Reykjavík

Harpa Reykjavik Concert and Conference Centre
Publisher/HostHarpa Reykjavik Concert and Conference Centre
Uppr\u00e1sin 11. febr\u00faar - KUSK & \u00d3viti, Sigr\u00fan og CH\u00d6GMA
Advertisement
Harpa, í samstarfi við Tónlistarborgina Reykjavík, Rás 2 og Landsbankann, stendur fyrir nýrri tónleikaröð sem tileinkuð er grasrót íslenskrar tónlistar, þvert á tónlistarstefnur. Tónleikaröðin kallast Upprásin og fer fram í Kaldalóni eitt þriðjudagskvöld í mánuði veturinn 2024-2025. Hún fer nú fram annað árið í röð og munu samtals 27 hljómsveitir koma fram, þrjár á hverju tónleikakvöldi.
Tónleikaröðin er liður í því að framfylgja dagskrárstefnu Hörpu um bætt aðgengi grasrótar og ungs fólks í öllum tónlistargreinum og auka við fjölbreytni. Markmiðið er einnig að tónlistaráhugafólk geti gengið að því vísu að heyra fjölbreytta nýja íslenska tónlist, beint úr grasrót tónlistarlífsins, flutta við kjöraðstæður í tónlistarhúsi þjóðarinnar.
Á þessum tónleikum koma fram KUSK & Óviti, Sigrún og CHÖGMA
Miðaverð er aðeins 2000 kr. en hægt er að leggja til hærri upphæð í miðasöluferlinu sem rennur beint til listafólksins.

KUSK & Óviti
KUSK & Óviti hafa unnið saman síðan 2021 og eru orðin þekktur dúett í íslensku hljómsveita- og grasrótarlífi. Þau spila svokallað “svefnherbergispopp”, dans-, og indítónlist.og sameina þau bedroom pop, dance music og indie pop í skemmtilega blöndu. Síðustu ár hafa þau spilað ótal tónleika innanlands og eru að gefa út ýmsa tónlist á árinu 2024. Framkoma KUSK og Óvita einkennist af gleði, hlýju og skemmtilegum lögum sem vekja upp tilfinningar eða löngun til að dansa.

Sigrún
Sigrún er hljóðfæraleikari, pródúser og söngvari og hefur unnið með fjölda ólíkra tónlistarmanna og hljómsveita í gegnum tíðina. Hún leiðir saman mörk tilraunkenndrar raftónlistar og popptónlistar og vefur áferðir saman af kostgæfni gegnum þunga takta, kirkjan og klúbburinn verða eitt. Sigrún steig sín fyrstu skref sem sólólistamaður árið 2016 og hefur síðan þá gefið út 5 smáskífur Nýjasta afurðinn er platan “Monster Milk” sem kemur út í september 2024.

CHÖGMA
CHÖGMA er austfirsk þungarokkssveit sem spilar framsækna og fjölbreytta tónlist, frá bjöguðum þungamálmi yfir í mjúkt og tæknilegt rokk. Sveitin varð í þriðja sæti á Músíktilraunum 2024. Hljómsveitina skipa Elísabet Mörk, söngvari og textasmiður, Kári Kresfelder bassa- og hljómgervilsleikari, Jakob Kristjánsson gítarleikari, Jónatan Emil Sigþórsson trommuleikari, og Stefán Ingi Ingvarsson bassa- og gítarleikari.
Advertisement

Event Venue & Nearby Stays

Austurbakki 2, 101 Reykjavík, Iceland, Austurbakki 2, 101 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland

Tickets

Discover more events by tags:

Pop in Reykjavík

Sharing is Caring:

More Events in Reykjavík

\u00deorrabl\u00f3t Skagamanna 2025
Sat Feb 15 2025 at 06:00 pm Þorrablót Skagamanna 2025

Íþróttahúsið Vesturgötu

Hot Fuzz - F\u00f6studagspart\u00eds\u00fdning!
Fri Feb 21 2025 at 09:00 pm Hot Fuzz - Föstudagspartísýning!

Hverfisgata 54, 101 Reykjavík, Iceland

After Hours - Svartir Sunnudagar
Sun Feb 23 2025 at 09:00 pm After Hours - Svartir Sunnudagar

Hverfisgata 54, 101 Reykjavík, Iceland

Breska \u00dej\u00f3\u00f0leikh\u00fasi\u00f0: The Importance of Being Earnest
Wed Feb 26 2025 at 08:00 pm Breska Þjóðleikhúsið: The Importance of Being Earnest

Hverfisgata 54, 101 Reykjavík, Iceland

Psychedelics as Medicine 2025
Thu Feb 27 2025 at 09:00 am Psychedelics as Medicine 2025

Harpa Concert Hall

Uppr\u00e1sin 11. mars - Samosa, Unfiled og El\u00f3
Tue Mar 11 2025 at 08:00 pm Upprásin 11. mars - Samosa, Unfiled og Eló

Austurbakki 2, 101 Reykjavík, Iceland

Reykjavík is Happening!

Never miss your favorite happenings again!

Explore Reykjavík Events