Advertisement
Menntadagur atvinnulífsins fer fram á Hilton Nordica þann 11. febrúar undir yfirskriftinni Störf á tímamótum. Menntadagurinn er sameiginlegt verkefni SA og allra aðildarsamtaka þar sem fræðslu- og menntamál atvinnulífsins eru í forgrunni.Á deginum verður m.a. 25 ára afmæli starfsmenntasjóðanna fagnað, menntaverðlaun atvinnulífsins afhent og staða menntunar rædd í arinspjall við forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur. Eftir formlega athöfn stendur fólki til boða að taka þátt í tveimur lotum af áhugaverðum málstofum og kynna sér árangur fjölbreyttra fyrirtækja í fræðslu- og menntamálum á sérstöku markaðstorgi dagsins.
Húsið opnar kl. 8:30 með léttum morgunverði á markaðstorginu fyrir framan aðalsalinn. Formleg dagskrá hefst síðan kl. 9 og verður henni streymt á öllum helstu miðlum.
Skráning er hafin á heimasíðu dagsins:
https://www.sa.is/frettatengt/serstok-malefni/menntadagur-atvinnulifsins/
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Hilton Reykjavík Nordica (Reykjavík, Iceland), Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland
Tickets