Advertisement
Árið er 1677 og hin tónlistarmenntaða Antonia Bembo yfirgefur sviksaman eiginmann í Feneyjum og heldur til Parísar, mögulega í fylgd gítarleikarans víðförla Francesco Corbetta. Í Frakklandi nær hún hylli Loðvíks XIV og semur meðal annars óperu sem hún tileinkar sólkonunginum. Í efnisskránni „Frá Feneyjum til Parísar“ einbeita Ieva Sumeja og barokkhópurinn ConsorTico sér að tónlist merkilegrar konu á síðari hluta 17. aldar, en rannsaka einnig tvo afar ólíka tónlistarheima sem settu mark sitt á öldina: Ítalíu og Frakkland. Auk verka eftir Antoniu Bembo sjálfa, sem að öllum líkindum hafa aldrei verið flutt hérlendis, hljóma einnig verk eftir samtímamenn hennar í Feneyjum og Frakklandi, m.a. Francesco Cavalli, Barböru Strozzi, Robert de Visée og Élisabeth Jacquet de la Guerre. Leikið er á upprunahljóðfæri.Almennt miðaverð er 4.500 kr., 3.500 kr. fyrir eldri borgara og námsmenn.
Flytjendur:
Ieva Sumeja, sópran
Sólveig Steinþórsdóttir, barokkfiðla
Anna Tóth, barokkselló
Sólveig Thoroddsen, barokkharpa
Sergio Coto Blanco, teorba og barokkgítar
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús / Harpa Concert Hall and Conference Centre, Austurbakki 2,Reykjavík, Iceland
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











