Advertisement
Bíó Paradís og Arkitektafélag Íslands bjóða upp á sérstakan viðburð á Frönsku kvikmyndahátíðinni á sýningu á Stórvirkinu (The Great Arch) sunnudaginn 1. febrúar kl 16:30. Karl Kvaran, arkitekt hjá SP(R)INT STUDIO, mun leiða spjall um arkitektúr og þemu myndarinnar að sýningunni lokinni á Regnboganum í efra rými bíósins.
Boðið verður upp á kampavín frá Vínekran (@ransvin.vinekran) eftir sýningu.
Allt félagsfólk AÍ fær 25% afslátt af miðaverði gegn framvísun félagsskírteinis.
Ath að aðeins er hægt að nálgast afsláttinn í miðasölu Bíó Paradís.
Hlökkum til að sjá sem flest!
Um myndina:
Hér er á ferðinni saga um arkitekt sem barðist gegn kerfinu til að koma sýn sinni í framkvæmd á stórvirki rétt utan við París.
Ómissandi drama með dönsku stórleikurunum Claes Bang og Sidse Babett Knudsen og kanadíska leikstjóra/leikaranum Xavier Dolan í aðalhlutverkum.
Nánar hér: https://bioparadis.is/mynd/633_the-great-arch/?event=franska-kvikmyndahatidin-2026
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Hverfisgata 54, 101 Reykjavík, Iceland, Hverfisgata 54, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











