Advertisement
English version below. Varðberg, pólska sendiráðið á Íslandi og utanríkisráðuneytið standa fyrir ráðstefnu í Norræna húsinu miðvikudaginn 10. júní 2026 þar sem fjallað verður um öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu og víðar. Viðburðurinn er haldinn í lok formennskutíðar Póllands í Eystrasaltsráðinu (CBSS) og í aðdraganda þess að Ísland tekur við formennsku þann 1. júlí 2026.
Á málþinginu verður farið yfir helstu áskoranir og tækifæri í samstarfi ríkja á svæðinu, þar á meðal vernd mikilvægra innviða, viðbrögð við fjölþáttaógnum, truflanir á GPS-merkjum, samhæfingu öryggismála og áframhaldandi stuðning við Úkraínu. Þá verða helstu áherslur Íslands í komandi formennsku kynntar, með áherslu á aukið samstarf, sjálfbærni og svæðisbundna samkennd.
Dagskrá:
09:00–09:30 – Hús opnar
Léttar veitingar í boði í anddyrinu.
09:30–10:00
Fundarstjóri: Aleksander Kropiwnicki, CdA pólska sendiráðinu
Fjarfundar ávarp:
Radosław Sikorski, aðstoðarforsætisráðherra og utanríkisráðherra Póllands
Opnunarávarp:
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra Íslands
⸻
10:00–10:40 – Pallborð 1
CBSS: Forgangsmál og samstarf
Fundarstjóri: Davíð Stefánsson, stjórnarformaður Varðbergs
Frummælendur:
Artur Harazim, aðstoðarutanríkisráðherra Póllands
Anna Hjartardóttir, ráðuneytisstjóri alþjóðamála og stefnumótunar, utanríkisráðuneyti Íslands
Herra Gustav Lindström, framkvæmdastjóri skrifstofu CBSS í Stokkhólmi
⸻
10:40–11:00 – Kaffi
⸻
11:00–11:40 – Pallborð 2
Öryggi á Eystrasaltssvæðinu og víðar
Fundarstjóri: Aleksander Kropiwnicki, CdA pólska sendiráðinu
Frummælendur:
Jónas G. Allansson, ráðuneytisstjóri varnarmála, utanríkisráðuneyti Íslands (staðfesting væntanleg)
Katarzyna Barcikowska, formaður nefndar háttsettra embættismanna CBSS, utanríkisráðuneyti Póllands
⸻
11:40–12:30 – Hádegishressing
⸻
Fundurinn er opinn, en skráning nauðsynleg sökum takmarkaðs sætafjölda. Skráning fer fram hér: https://forms.office.com/r/KvjhmxR9AP
Viðburðurinn fer fram á ensku og verður í beinu streymi á vef Varðbergs og í fjölmiðlum.
Varðberg, the Polish Embassy in Iceland, and the Icelandic Ministry for Foreign Affairs are hosting a conference at the Nordic House on Wednesday, 10 June 2026, focusing on security and political cooperation in the Baltic Sea region and beyond. The event is being held at the conclusion of Poland’s presidency of the Council of the Baltic Sea States (CBSS), ahead of Iceland assuming the presidency on 1 July 2026.
The conference will examine the key challenges and opportunities in cooperation among the states of the region, including the protection of critical infrastructure, responses to hybrid threats, GPS signal interference, coordination of security matters, and continued support for Ukraine. Iceland’s main priorities during its upcoming presidency will also be presented, with an emphasis on enhanced cooperation, sustainability, and regional solidarity.
Programme:
09:00–09:30 – Arrival and Registration
Light refreshments available in the foyer.
09:30–10:00 – Opening Remarks
Chair and Moderator: Mr. Aleksander Kropiwnicki, CdA
(Televised) Welcome Remarks:
Mr. Radosław Sikorski, Deputy Prime Minister and Minister of Foreign Affairs of Poland.
Keynote Speech:
Ms. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Minister for Foreign Affairs of Iceland
⸻
10:00–10:40 – Panel 1
CBSS: Political Priorities and Cooperation
Chair and Moderator: Mr. David Stefansson Chairman of Varðberg
Speakers:
Mr. Artur Harazim, Undersecretary of State, Ministry of Foreign Affairs of Poland
Ms. Anna Hjartardóttir, Director General, Directorate for International Affairs and Policy, Ministry for Foreign Affairs of Iceland
Mr. Gustav Lindström, Director General of the CBSS Secretariat in Stockholm
⸻
10:40–11:00 – Coffee Break
⸻
11:00–11:40 – Panel 2
Security in the Baltic Sea and Beyond
Chair and Moderator: Mr. Aleksander Kropiwnicki, CdA
Speakers:
Mr. Jónas G. Allansson, Director General, Directorate for Defence, Ministry for Foreign Affairs of Iceland (tbc)
Ms. Katarzyna Barcikowska, Chair of the Committee of Senior Officials of the CBSS, Ministry of Foreign Affairs of Poland
⸻
11:40–12:30 – Lunch
⸻
The conference is open to the public, but registration is required due to limited seating capacity. Registration is available here:
https://forms.office.com/r/KvjhmxR9AP
The event will be conducted in English and streamed live on the Varðberg website and through media outlets.
Advertisement
Event Venue
Norræna húsið The Nordic House, Sæmundargata 11,Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











