Advertisement
Daginn áður en sumarið tekur við, lokum við vetrinum saman á Hverfisgötunni með ferskum blæFjórir listamenn. Eitt kvöld. Röntgen, 22. apríl
Rorri hefur verið að gera R&B og hip-hop tónlist frá grunnskólaárum og gaf út sitt fyrsta lag árið 2022. Undanfarin misseri hefur hann verið gjörsamlega læstur inni í stúdíóinu að þróa nýtt sound, sem hann frumflytur á viðburðinum.
Númer 3 er tveggja manna hljómsveit sem stendur saman af pródúsentinum Oddi Þórissyni og söngvaranum Ragnari Steini. Þótt samstarfið undir þessu nafni sé tiltölulega nýtt á pappír, hafa þeir unnið saman í tónlist í mörg ár.
Haukur Páll er pródúser, hljóðmaður og listamaður sem hefur verið að semja tónlist frá þrettán ára aldri. Hann gaf nýverið út sína fyrstu plötu, projectið í heild sinni er ákveðið ferðalag sem sýnir smekk Hauks frá A til Ö.
Valgeir er DJ og pródúsent sem hefur verið að gefa út elektróníska tónlist og á að baki fjóra singúla. Hann er að einbeita sér að nýjum hljóðheim sem mun fá að líta dagsins ljós von bráðar.
Röntgen | 22. apríl | Byrjum kl. 20:00
Advertisement
Event Venue
Röntgen, Hverfisgata 12, 101 Reykjavíkurborg, Ísland, Reykjavík, Iceland
Tickets
Concerts, fests, parties, meetups - all the happenings, one place.











