Advertisement
La Brújería Gufustund - nýtt tunglárVerið hjartanlega velkomin í sérstaka galdra-gufu undir nýju tungli og á nýju tunglári þar sem máttardýrið er slangan
Eitt af því sem við getum gert til að setja tóninn fyrir ár slöngunnar er að taka til í þínu persónulega lífi og skoða vel hvað það er sem þú getur sleppt eða hreinsað út til þess að styðja við þín eigin “hamskipti” líkt og slangan fer í gegnum.
Við stígum nú skref með hækkandi sól hvern dag en erum þó enn djúpt í vetrinum svo að daglegar athafnir eins og að fara í gufubað og horfa í eldinn, andlits/líkamsskrúbbur fyrir húðina, bera á sig húðolíu og næringarríkar súpur geta verið einföld en mögnuð ráð til að vinna með og styðja við sig.
Gufustundin er rúmega 1 klst með þremur lotum og stuttum pásum inná milli. Boðið verður uppá vatn með jurtadropum, tungl-hugleiðslu, líkams og andlitsskrúbba ásamt húðolíu og í lokin verður hægt að kíkja á litlu nornabúðina með varning frá La Brújería
Eldmeistari er Una Björg og Þorgerður Gefjun sér um leiðsögn og fræðslu.
Það er mikilvægt að skrá sig í skilaboðum eða senda póst á netfangið [email protected]
Verð 5,000 kr.
Kl. 17:00 -UPPSELT
AUKAGUFA KL 19:30
Advertisement
Event Venue & Nearby Stays
Skerjafjörður, Einarsnes 62A, 102 Reykjavíkurborg, Ísland,Reykjavík, Iceland